Innlent

Nærri 900 milljónir króna í ábyrgðasjóð launa

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra.

Fjárheimild ábyrgðasjóðs launa hækkar samtals um 360 milljónir króna samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga sem lagt hefur verið fyrir Alþingi. Gerð er tillaga um 310 milljóna króna hækkun í ljósi þess að greiðslur úr sjóðnum hafa verið óvenju miklar það sem af er liðið af árinu 2008, segir í greinagerð með frumvarpinu.

Þar segir jafnframt að horfur séu á að gjaldþrotum muni fjölga á næstu mánuðum. Áætluð heildarútgjöld séu 869 milljónir króna en fjárlög hafi gert ráð fyrir 555 milljónum króna. Í öðru lagi sé áætlað að vaxtagjöld sjóðsins af skuld við ríkissjóð verði 110 milljónir króna sem sé 50 milljóna króna hækkun frá áætlun fjárlaga.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×