8 þúsund fyrirtæki skila ekki ársreikningi 15. febrúar 2008 10:40 Pálmi Haraldsson lofar að skila strax inn ársreikningi fyrir félag sitt Fons.
Átta þúsund fyrirtæki skila ekki ársreikningum til Ársreikningaskráar samkvæmt heimildum Vísis. Fons, félag athafnamannsins Pálma Haraldssonar, er eitt þeirra en það hefur ekki skilað ársreikningi undanfarin þrjú ár eins og fram kom í blaðinu 24 stundum í morgun. "Ég vissi hreinlega ekki af þessu. Þetta er áfall fyrir okkur og við munum strax kippa þessu í liðinn," segir Pálmi í samtali við Vísi. Hann bætir við því að hann sé hundfúll með umfjöllun 24 stunda sem hann segir ósanngjarna. "Það er látið líta út eins og ég hafi framið glæp. Ég skil ekki svona blaðamennsku," segir Pálmi en hann er stjórnarmaður og næststærsti hlutahafi 365 sem Vísir tilheyrir. Guðmundur Guðbjarnason, forstöðumaður Ársreikningaskrár, sagði í samtali við Vísi að það þurfi að senda stórum hópi fyrirtækja bréf á hverju ári til að minna þau að skila ársreikningi. Það verða margir við þeirri áskorun og en það er alltaf einhverjir sem skila ekki inn," segir Guðmundur og bætir við að það sé yfirleitt af tveimur ástæðum. "Annað hvort eru menn trassar eða þá ekki með bókhaldið í lagi." Ársreikningaskrá hefur heimild til að sekta félög um allt að 500 þúsund krónur fyrir að standa ekki skil á ársreikningum.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Sjá meira