Lífið

Gulli Helga hleður batteríin í París

sev skrifar
Það er búið að vera nóg að gera hjá Gulla.
Það er búið að vera nóg að gera hjá Gulla.

Gulli Helga og eiginkona ætla í langþráð frí um næstu helgi og hlaða batteríin í París. „Þetta er búið að vera svolítið mikið. Vægast sagt," segir Gulli. Hann hefur hvergi slegið slöku við undanfarið, og sinnt öllum hefðbundum störfum sínum auk þess að vinna við Hæðina. „Þetta er eiginlega búin að vera samfelld törn frá því í september."

Það er þó ekki endalaus afslöppun í kortunum hjá Gulla. Þegar er byrjað að undirbúa næstu seríu Hæðarinnar, sem fer í tökur með haustinu. Sá undirbúningur er þó á frumstigi, og ekki búið að ákveða hvaða hús verða tekin fyrir næst.

Aðpurður um hvort það sé ekki létt verk og löðurmannlegt að finna hentugar nýbyggingar miðað við stöðuna á fasteignamarkaði segir Gulli of snemmt að segja til um það. Ekki henti allt jafn vel undir upptökurnar. „Kosturinn við það sem við vorum með núna var hvað íbúðirnar voru stórar," segir Gulli, og bætir við að slíkt komi betur út á mynd. Þá viti færri það að tökuliðið hafi verið með tvö alveg eins hús sitt hvoru megin við þau sem pörin innréttuðu, til að geyma tæki og taka viðtöl. „Þetta voru þvílíkar kjöraðstæður. Við vorum ofdekruð á Hæðinni."

Þeir sem misstu af Hæðinni fá tækifæri næstkomandi fimmtudag til að rifja upp aðalatriðin. Þá verður níundi og síðasti þátturinn sýndur, þar sem stiklað verður á því sem bar hæst í þáttunum. Úrslitaþátturinn verður svo endursýndur á Stöð 2 Extra í kvöld kl. 22, klukkan 20 annað kvöld, og á Stöð 2 sunnudagseftirmiðdaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.