Enski boltinn

Makelele seldur til PSG

Elvar Geir Magnússon skrifar
Makelele verður kynntur sem leikmaður PSG á blaðamannafundi í dag.
Makelele verður kynntur sem leikmaður PSG á blaðamannafundi í dag.

Miðjumaðurinn Claude Makelele hefur verið seldur frá Chelsea til Paris St. Germain í Frakklandi. Makelele er 35 ára en hann hefur verið hjá Chelsea í fimm ár, síðan hann var keyptur frá Real Madrid.

Makelele lagði landsliðsskóna á hilluna eftir að Frakkland féll úr leik á Evrópumótinu nú í sumar. Búist var við að hann tæki eitt tímabil til viðbótar með Chelsea en nú er ljóst að hann er á heimleið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×