Einar kaupir einbýlishús Breki Logason skrifar 20. nóvember 2008 16:12 Einar Bárðarson.
Einar Bárðarson hefur fest kaup á einbýlishús á stór-keflavíkursvæðinu eins og hann orðar það. Húsið er um 170 fermetrar og er staðsett í innri Njarðvík. Hannes Steindórsson fasteignasali fræga fólksins seldi Einari húsið, en keypti síðan sjálfur hús í sömu götu. „Þetta er nú bara með minni húsum í götunni, sem er enginn Sólvallargata sko," segir Einar sem hefur búið í íbúð í Reykjanesbæ undanfarið. „Hannes seldi mér þetta hús og fannst þetta síðan svo mikil reyfarakaup hjá mér að hann ákvað að flytja líka í götuna. Hann er auðvitað í miklu stærra húsi og hefur líka tilkynnt mér að hann eigi fleiri DVD myndir. Ég er því algjörlega að tapa fyrir Hannesi," segir Einar og hlær. Eiginkona Einars er frá Keflavík og honum líkar vel að búa suður með sjó. „Við seldum ágætis eign á sínum tíma og fórum svo til London í smá tíma og vorum með litla íbúða hérna tímabundið. Það ílengdist síðan og við höfum verið að leita að stærra húsnæði síðan í vor. Ég er frá Selfossi þannig að mér finnst gott að vera svona í návígi við allt. Ég labba til dæmis með dóttur mína á leikskólann á morgnanna," segir Einar. Hann bendir einnig á að það séu ekki nema fimm tímar á Akureyri og tveir og hálfur tími til London. „Og ef himinn og jörð eru að farast þá komumst við til Reykjavíkur á 25 mínútum." Nokkuð hefur verið gert úr því í fjölmiðlum að Einar sé orðinn aðstoðarmaður Kjartans Ólafssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins. „Það hefur nú verið gert nokkuð mikið úr því. En samkvæmt vef Alþingis þá er þetta þrjátíu prósent starf. Mitt aðal starf er hinsvegar verkefni sem heitir Íslendingur og snýst um að opna víkingaheima hér á Fitjum." Aðspurður hvort ekki hafi komið bakslag í opnun víkingaheimanna í ljósi efnahagsástandsins segir Einar. „Það stoppar mig ekkert. Nei, nei. Ég er að stýra þessu verkefni og á að sjá til þess að þetta opni í vor. Þetta snýr aðallega að markaðs- og kynningarmálum en fjármögnunin hefur að sjálfsögðu orðið erfiðari, það er ekker launungarmál. En það er allt hægt."
Mest lesið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Tilkynntu óvart dauða konungsins Lífið Hvað veistu um... flugvelli? Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Lífið Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Lífið Rick og Morty á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Lífið samstarf Fleiri fréttir Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Sjá meira