Meiri stemmning í sjávarútveginum en um árabil 20. nóvember 2008 12:29
Íslenskir frystitogarar hafa skilað á land aflaverðmæti sem nemur tveimur milljörðum króna síðustu daga. Meiri stemmning er í greininni en um árabil. Björn Valur Gíslason, skipstjóri á Kleifaberginu sem Brim gerir út, segir að sjómennska virðist aftur komin í tísku og sé ánægjulegt að fylgjast með auknum áhuga almennings og fjölmiðla á greininni. Kleifabergið er nýkomið úr löngum túr þar sem aðalveiðisvæðið var norður af Múrmanks. Þar veiddist þorskur og nam aflaverðmæti um 240 milljónum króna. Víðir Sigurðsson var skipstjóri í túrnum. Þetta er ekki eini risatúrinn undanfarið. Skip Samherja hafa landað góðum afla undanfarið og þá var komið með afla í land hjá Granda fyrir skömmu, þar sem aflaverðmæti er sagt svipað og hjá Kleifaberginu, um 240 milljónir í einum túr. Allir frystitogarar landsins hafa samkvæmt upplýsingum frá Karli Má Einarssyni útgerðarstjóra Brims lokið góðum túrum, aflaverðmæti þeirra er frá 150 milljónum og upp í 200 að jafnaði og reiknast mönnum til að á nokkrum dögum hafi afla fyrir tvo milljarða verið landað í heildina við Íslands strendur. Það gæti verið Íslandsmet. Og þessar tekjur skila sér í aukinni spurn eftir plássi á sjó. Á þeim tíma sem allt snerist um bankana var orðið erfitt fyrir útgerðir að fá vana mann á sjó en nú er öldin önnur. Ein laus hásetastaða var auglýst á dögunum og sóttu 400 manns um hana, samkvæmt upplýsingum frá skipstjóra. Og enn gæti átt eftir að fjölga í flotanum því Karl Már Einarsson, útgerðarstjóri Brims, segir ekkert launungarmál að sjómenn búist við aukaþorskkvóta fyrir jól.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira