Deildu um hvort yfirstjórn Seðlabankans ætti að víkja 20. nóvember 2008 11:09
Geir H. Haarde forsætisráðherra og Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, deildu hart um það hvort stjórn Seðlabankans ætti að víkja þegar ráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu um samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins sagði deilurnar sýna að ríkisstjórnin væri óstarhæf og ekki væri hægt að bjóða Alþingi upp á þetta. Krónan verður sett á flot á næstu dögum.Geir H. Haarde hóf umræðu um þingsályktunartillöguna á því að benda á að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði í gærkvöldi samþykkt að lána Íslandi 2,1 milljarða dollara á grundvelli áætlunar um efnahagsmál. Sagðist Geir hafa beitt sér fyrir því að málið yrði rætt á Alþingi með því að leggja fram þingsályktunartillöguna og hafnaði hann því fullyrðingum um leynd og pukur í tengslum við lánið.Sagði hann samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafa verið einu lausnina í þeim vanda sem við stæðum frammi fyrir og hún væri eina stofnunin sem hefði bolmagn til þess að aðstoða við að leysa vandann. Samstarf við hana yki traust á þeim skrefum sem við þyrftum að taka á næstunniBrýnasta verkefnið að setja krónuna á flotGeir sagði enn fremur að þrátt fyrir vandann væru undirstöður samfélagsins traustar og að áætlun ríkisstjórnarinnar í samstarfi við sjóðinn ásamt öðrum lánum myndi gera Íslandi kleift að vinna traust alþjóðafjármálakerfisins á ný. Sagði hann viljayfirlýsingu stjórnvalda gagnvart sjóðnum snúast um að endurvekja traust á íslenskum efnahag, styrkja stöðu ríkissjóðs og endurreisa bankakerfið. Brýnasta verkefnið væri að styrkja stöðu krónunnar og að hún yrði sett á flot þegar fyrsti hluti fyrirgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kæmi hingað til lands.Ráðherra sagði einnig að kostnaður ríkisins vegna endurfjármögnunar banka og Seðlabankans og vegna innistæðutrygginga í útlöndum yrði mikill en hann yrði endurheimtur að hluta með sölu eigna bankanna. Því þyrfti að sýna verulegt aðhald í ríkisfjármálum á næstu árum.Seðlabankinn tæknilega gjaldþrotaHelgi Hjörvar svaraði ræðu forsætisráðherra og óskaði ríkisstjórninni til hamingju með að hafa siglt málinu í höfn. Hann sagði hins vegar að yfirstjórn Seðlabankans væri rúin tiltrú og trausti og þingmenn úr öllum flokkum hefðu kallað eftir því að skipt yrði um hana. Meirihluti væri fyrir því á Alþingi að fá fagmenn að yfirstjórn Seðlabankans. Kallaði hann eftir breytingum á yfirstjórninni nú þegar fela ætti Seðlabankanum þessi lán. Sagði hann Seðlabankann tæknilega gjaldþrota því hann hefði tapað um 150 milljörðum á viðskiptum með skuldabréf bankanna.Geir H. Haarde sagði Seðlabankann ekki gjaldþrota og sagði efnahagsáætlun stjórnvalda unna í faglegu samstarfi við sérfræðinga á vegum bankans. Spurningin um yfirstjórn Seðlabankans dúkkaði upp reglulega en hún ætti ekki rétt á sér. Bankinn gerði sér grein fyrir verkefni sínu nú og fagmenn hans hefðu undirbúið að setja krónuna á flot næstu daga. Ekkert væri upp á Seðlabankann að klaga.Þingmenn úr öllum flokkum vilja skipta um yfirstjórnHelgi kom þá aftur í pontu og benti á þingmenn úr öllum flokkum og forystumenn stjórnmálaflokka sem hefðu talið nauðsynlegt trúverðuleikans vegna að skipta um yfirstjórn Seðlabankans. Þótt trúmennska væri dyggð mætti þó öllu ofgera.Geir svaraði því til að trúverðugleiki væri lykilatriði, bæði innan lands og utan. Hann hefði verið að skoða viðbrögð erlendra aðila við láni IMF og þrátt fyrir okkar vandamál nytum við trausts. Sagðist hann telja að þingmenn ættu ekki að reyna að grafa undan þeim trúverðugleika, hvorki stjórnarþingmenn né stjórnarandstöðuþingmenn.Berja hvor á öðrum með SeðlabankanumSiv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði hvað væri hér á ferðinni og sagði ríkisstjórnarflokkana berja hvor á öðrum með Seðlabankanum. „Þetta er óstarfhæf ríkisstjórn, virðulegur forseti," sagði Siv og sagði ekki hægt að bjóða upp á þennan málflutning. „Við horfum á ríkisstjórnarflokkana berja hvorn annan í beinni útsendingu," sagði Siv og sagðist enn fremur farin að vorkenna forsætisráðherra að sitja undir þessu.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira