Innlent

Starfsmaður Fjarðaáls slasaðist

Um kl. 23:30 í gærkvöldi var lögreglu tilkynnt um vinnuslys í álverksmiðju Alcoa-Fjarðaáls á Reyðarfirði. Starfsmaður var að vinna við deglulok uppi á vagni sem tengdur var lyftara.

Vagninn virðist hafa verið hreyfður til með þeim afleiðingum að deglulokið slóst í starfsmanninn sem féll við. Starfsmaðurinn var fluttur til skoðunar á fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. Starfsmaðurinn rifbrotnaði á þremur rifjum og annað lungað féll saman. Er líðan hans eftir atvikum. Þeir starfsmenn sem næstir stóðu fengu áfallahjálp sem veitt var af prestum sóknarinnar. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Eskifirði segir í fréttatilkynningu þaðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×