Sendi út umsagnarbréf áður en mál var tekið fyrir á þingi 15. maí 2008 15:10 MYND/Vilhelm
Hart var deilt á Ástu Möller, formann heilbrigðisnefndar Alþingis, í dag eftir að hún upplýsti á þingi að hún hefði í síðustu viku sent út bréf til umsagnaraðila í tengslum við frumvarp um sjúkratryggingar. Mælt var fyrir frumvarpinu í dag. Sagðist Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, aldrei hafa orðið vitni að því að formaður nefndar hefði talið sig hafa umboð til þess að senda mál til út til umsagnar áður en það væri komið á forræði nefndarinnar. Alþingi hefði ekki einu sinni verið búið að samþykkja að veita afbrigði fyrir því að taka málið fyrir. Útsending Ástu Möller væri markleysa og hún ætti að kalla bréfin til baka. Senda ætti út umsagnarbeiðnir þegar og ef heilbrigðisnefnd tæki frumvarpið til umfjöllunar. Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sagðist hafa fengið upplýsingar um að fordæmi væru fyrir þessu frá tímum efnahagsnefndar undir forystu Vilhjálms Egilssonar. Hún mótmælti þessum vinnubrögðum og lagði Siv til að málið yrði tekið af dagskrá. Einar Már Sigurðarson, starfandi forseti þingsins, sagði að fundað hefði verið um málið í hádeginu með þingflokksformönnum og þar hefðu menn komist að þeirri niðurstöðu að halda málinu áfram. Forseti hefði fundað með formanni heilbrigðisnefndar í kjölfarið sem hefði ákveðið að boða til fundar í nefndinni eins fljótt og auðið væri. Þar yrði farið yfir umsagnirnar sem Ásta hefði aflað og nefndin hefði þá málið á forræði sínu. Ásta Möller sagði við umræðuna að henni hefði þótt leitt að hafa strokið þingmönnum stjórnarandstöðunnar svona öfugt. Það hefði aðeins vakað fyrir henni að greiða fyrir því að málið yrði tekið til umræðu. Hún hefði leitað til nefndarsviðs Alþingis eftir fordæmi og það hefði hún fengið. Ásta benti á að bréfið væri sent í hennar nafni en ekki heilbrigðisnefndar og því væri engin ástæða til að afturkalla það. Frumvarpið sem um ræðir snýr að breyttu fyrirkomulagi heilbrigðismála og hefur stjórnarandstaðan sagt það fela í sér grundvallarbreytingu á heilbrigðiskerfinu. Með því á að koma á sérstakri sjúkratryggingastofnun sem kaupanda heilbrigðisþjónustu.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Fleiri fréttir „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Sjá meira