Búið að rekja bloggfærslur um nauðgun og skotárás Breki Logason skrifar 15. maí 2008 15:24
Frásagnir um skotárás og nauðgun sem birtist á íslenskri síðu á netinu í vikunni fóru strax til rannsóknar hjá lögreglunni. Haft var upp á Ip-tölum og viðkomandi tölvur voru staðsettar. Á forsíðu Fréttablaðsins í morgun er sagt frá því að lögreglan rannsaki veffærslur þar sem fimmtán ára stúlka lýsir nauðgun af hendi fósturföður síns og unglingspilts sem hótar að skjóta bekkjarfélaga sína. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, var hafist handa við að útvega svokallaðar Ip-tölur í kjölfar málanna tveggja. Ip-tölur eru einkennistölur tölva og með því að hafa upp á þeim er hægt að sjá úr hvaða tölvum færslurnar koma. Báðar færslurnar eru skrifaðar á vefsvæðið, www.blabla.is. Í öðru tilvikinu lýsir fimmtán ára gömul stúlka því hvernig fósturfaðir hennar nauðgaði henni á meðan móðir hennar lá á spítala. Einnig kemur fram að hann hafi misnotað hana kynferðislega í nokkur ár og eru lýsingarnar nokkkuð nákvæmar. Greinilegt er að stúlkan óttast manninn og spyr lesendur síðunnar hvað sé til ráða. Sú færsla kemur úr tölvu sem staðsett er í bæjarfélagi utan höfuðborgarsvæðisins og segir Friðrik Smári að staðarlögreglunni þar sem og barnaverndaryfirvöldum hafi verið tilkynnti um málið. Friðrik getur því ekki svarað frekar fyrir það mál. Í hinu tilviku segir piltur í níunda bekk frá því að það sé einungis tímaspursmál hvenær hann skjóti alla bekkjarfélaga sína og sprengi sig síðan í loft upp í Alþingishúsinu. Sú færsla kemur úr tölvu á höfuðborgarsvæðinu. Verið er að vinna í því að ná tali af piltinum.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira