Nærri fimmtíu starfsmenn borgarinnar á hærri launum en Jakob 15. maí 2008 10:33 Ólafur F Magnússon
Vegna umræðna um launagreiðslur hjá Reykjavíkurborg vill borgarstjóri árétta að nálægt 20 starfsmenn borgarinnar hafa yfir kr. 950.000,- í mánaðarlaun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá borgarstjóra. Þar segir ennfremur að á fimmta tug starfsmanna Reykjavíkurborgar hafa hærri laun en nýráðinn framkvæmdastjóri miðborgarmála, sem eru kr. 710.000,- og eru það sömu laun og fyrrum miðborgarstjóri, Kristín Einarsdóttir hafði í tíð R-listans. Í þessu samhengi skal bent á að leitað var til fyrrum miðborgarstjóra R-listans um að taka að sér starf framkvæmdastjóra miðborgarmála áður en leitað var til Jakobs F. Magnússonar. Miðborg Reykjavíkur hefur farið hnignandi á undanförnum árum. Borgaryfirvöld ákváðu að bregðast við þeim vanda með fjölþættum aðgerðum innan borgarkerfisins í samstarfi við aðila í miðborginni snemma í vor. Einn liður í áðurnefndum aðgerðum fólst í því að ákveðið var að ráða starfsmann til að sinna málefnum miðborgarinnar. Þar sem flýta þurfti ráðningu og um tímabundna ráðningu var að ræða var ákveðið að auglýsa ekki eftir starfsmanni heldur leita að öflugum einstaklingi sem gæti tekið fljótt til starfa vegna brýnna verkefna í mðborginni. Kannað var hvort slíkur starfsmaður væri tiltækur innan borgarkerfisins og var leitað til sviðsstjóra ýmissa sviða um ábendingar en það bar ekki árangur. Sérstaklega var leitað til fyrrverandi miðborgarstjóra Kristínar Einarsdóttur, aðstoðarsviðsstjóra framkvæmda- og eignasviðs sem kom í viðtal. Auk þess var leitað til einstaklings utan borgarkerfisins sem kom líka í viðtal. Viðtöl við þessa einstaklinga fóru fram í fullu samráði við skrifstofustjóra borgarstjóra, sem var viðstödd viðtölin. Eftir ítarlega leit bar nafn Jakobs F. Magnússonar á góma. Leitað var til hans og var hann ráðinn í starf framkvæmdastjóra miðborgarmála. Ranglega hefur verið haldið fram af borgarráðsfulltrúum minnihlutans að staða framkvæmdastjóra miðborgarbmála sé sambærileg við stöðu verkefnisstjóra sem auglýst var í desember 2007 en svo er alls ekki. Staðan er fyllilega sambærileg við stöðu fyrrum miðborgarstjóra og framreiknuð laun þeirrar stöðu eru hin sömu og laun nýráðins framkvæmdastjóra miðborgarmála. Sú staðreynd að leitað var til Kristínar Einarsdóttur sem gegndi starfi miðborgarstjóra í tíð R-listans vitnar um að hér var ekki um pólitíska ráðningu að ræða.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira