Davíð ætlar í pólitík verði honum ýtt út 4. desember 2008 00:01 „Ef ég verð neyddur til að segja af mér lítur málið allt öðruvísi út. Þá ætla ég að snúa aftur í pólitík,“ hefur Fyens Stiftstidende eftir Davíð Oddssyni seðlabankastjóra. Blaðamaðurinn, sem er fyrrverandi aðalritstjóri blaðsins, segir að hann hafi verið með hvasst blik í augum þegar orðin voru látin falla. „Davíð er tilbúinn í baráttu,“ segir hann.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri ætlar að sitja í nokkur ár í viðbót sem seðlabankastjóri og hætta svo á eigin forsendum með sama hætti og þegar hann hætti sem forsætisráðherra. Ef hann verður neyddur til þess að segja af sér ætlar hann að fara aftur í pólitík. „Ég er bara 60 ára og fullkomlega heilbrigður svo að ég hef hugsað mér að sitja í nokkur ár í viðbót og draga mig svo í hlé af fúsum og frjálsum vilja eins og ég gerði sem forsætisráðherra," segir Davíð í viðtali við Fokus, fylgiblað danska blaðsins Fyens Stiftstidende, sem á sunnudag var helgað þróuninni á Íslandi. „Ef ég verð neyddur til að segja af mér lítur málið allt öðruvísi út. Þá ætla ég að snúa aftur í pólitík," segir hann. Bent A. Koch, fyrrverandi aðalritstjóri Fyens Stiftstidende, sem tók viðtalið, bætir við: „Enginn þarf að vera í vafa um að Davíð er tilbúinn í baráttu." Viðtalið við Davíð birtist undir fyrirsögninni „Blóraböggull fólksins: Ég varaði við en enginn vildi hlusta". Í undirfyrirsögn segir: „Maðurinn, sem Íslendingarnir telja að beri alla sökina, hættir ekki af fúsum og frjálsum vilja." Í viðtalinu er Davíð spurður að því hvernig það sé að vera sá maður sem mest sé gagnrýndur á Íslandi. „Það er auðvitað ekki skemmtilegt að vera skammaður. En ég hef reynt það áður og ég hef hreina samvisku," svarar Davíð og kveðst skilja vel að fólk finni fyrir reiði gagnvart stjórnmálamönnum og kerfinu öllu. Hann segist skilja að „ég sem hef tekið þátt í að stjórna í svo mörg ár og sit nú í Seðlabankanum, sé gerður að skotskífu, táknmynd allra þeirra sem fólk telur að hafi svikið það," segir hann. Davíð segist hafa varað við þróuninni allan tímann en enginn hafi viljað hlusta á viðvaranir. Hann segir að fjölmiðlar á Íslandi séu ekki sjálfstæðir og frjálsir. Enginn geti neitað því að hann hafi verið mjög gagnrýninn í garð nýju fjárfestanna. Þeir hafi fengið stöðugt meiri völd og meðal annars viljað ráða yfir fjölmiðlunum. Geir H. Haarde forsætisráðherra vildi ekki tjá sig um orð Davíðs í Fyens Stiftstidende þar sem hann var ekki búinn að sjá blaðið. 4,7 prósent sögðust myndu styðja Davíð í sérframboði, samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem gerð var 22. nóvember. 7,8 prósent sögðust myndu styðja Sjálfstæðisflokkinn ef hann væri leiddur af Davíð. Rúmlega 95 prósent tóku afstöðu til spurninganna.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira