4 ára fangelsi fyrir að brjótast inn og leita á stúlkubarn 4. desember 2008 18:28
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Jóhann Sigurðarson í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa brotist inn á heimili um miðja nótt og leitað á fimm ára gamla stúlku. Jóhann sem er fertugur á langan brotaferil að baki. Í dómnum kemur fram að tilkynnt hafi verið um innbrot í húsi við Grettisgötu í Reykjavík þar sem leitað hafi verið á stúlkubarn. Stúlkan lá uppi í rúmi hjá ömmu sinni þegar maðurinn byrjaði að klæða hana úr buxunum. Við það vaknaði amman og stúlkan og hljóp maðurinn þá á brott. Lögreglan hóf strax leit að manninum um nóttina en án árangurs. Lýsing á manninum sem og fingrafar sem fannst á vettvangi passaði þó við Jóhann. Hann neitaði sök allan tímann og segist ekki hafa munað eftir sér frá því hann fór á skemmtistaðinn Grand Rokk umrætt kvöld og þar til hann vaknaði um hádegisbil heima hjá sér. Fingrafarið fannst þó innan á rúðu við hliðina á útidyrahurðinni sem búið var að brjóta upp. Einnig fannst hráki á tröppum hússins, sem við DNA-rannsókn reyndist vera úr honum. Jóhann gat ekki gefið skýringu á því hversvegna fingrafar hans og hráki hefðu verið á staðnum. Líkt og fyrr segir er sakaferill Jóhanns nokkuð langur m.a hefur hann verið fundinn sekur um að hafa veist að konu á salerni veitingahúss, farið höndum um líkama hennar, fellt hana í gólfið, barið höfði hennar margsinnis í vegg, dregið buxur hennar og nærbuxur niður að hnjám og farið höndum um kynfæri hennar. Hann hefur einnig verið dæmdur fyrir að hafa farið í tvígang inn í íbúðarhús um hánótt og tekið fjögurra ára gamalt stúlkubarn sofandi úr rúmi sínu og farið með það út úr húsi um hánótt um miðjan vetur. Jóhann sagðist fyrir dómi, ekki vera haldinn barnagrind.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira