Innlent

Mögulega fleiri í formannsslaginn í Framsókn

Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveinsson MYND/http://gunnarbragi.blog.is

Enn bætist í hóp þeirra sem gætu mögulega boðið sig fram til formannsembættis Framsóknarflokksins. Orðið á götunni bloggaði á dögunum um að Gunnar Bragi Sveinsson, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði og formaður SSNV hygðist bjóða sig fram til formanns. Hann útilokar það ekki í samtali við héraðsfréttablaðið Feykir.is en segir framboð í einhver af æðri embættum flokksins eins koma til greina.

„Ég útiloka ekki neitt en á síður von á því að fara í formanninn og þá af efnahagslegum ástæðum. Það er dýrt að taka þann slag og ekki síður gegna þeirri stöðu þar sem hún kallar á ferðalög vítt og breytt um landið og þá algjörlega á kostnað þess sem í embættinu er," svarar Gunnar Bragi spurningum Feykis um þann orðróm að hann sé að hugleiða formannsframboð. Gunnar Bragi hyggst á næstu dögum hvíla undir hinum margfræga feldi og má því eiga von á endanlegri niðurstöðu frá honum á næstu dögum.

Guðni Ágústsson sagði af sér formennsku í flokknum á dögunum, og Valgerður Sverrisdóttir varaformaður tók við. Hún hyggst hinsvegar ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu í embættinu.

Þrír hafa þegar tilkynnt um framboð sitt, þeir Höskuldur Þór Þórhallsson alþingismaður, Páll Magnússon bæjarritari í Kópavogi og Jón Vigfús Guðjónsson sjómaður á Akureyri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×