Um þrjá mánuði að vinna sér inn ævilaun verkafólks 28. maí 2008 16:46
Laun æðsta stjórnanda Kaupþings árið 2006 jafngiltu því að í kringum 10. mars væri hann búinn að vinna sér inn upphæð sem venjulegt verkafólk er alla starfsævina að strita fyrir.Enn fremur tók það 321 fullvinnandi verkakonur allt árið að vinna fyrir launum hans. Þetta kemur fram í athugun Alþýðusambands Íslands á svokölluðum ofurlaunum nokkurra stjórnenda í efnahagslífinu sem birt er í nýrri hagspá sambandsins. „Við hljótum að spyrja að samfélagslegri ábyrgð stjórnenda sem þiggja slík laun í ljósi þeirrar staðreyndar að um tuttugu ára skeið hefur ríkt sátt um að launafólk sýni ábyrgð í launakröfum sínum til þess að hér mætti ríkja stöðugleiki í efnahagslífinu," segir í skýrslu ASÍ.Þá segir í skýrslunni að síðustu ár hafi ráðstöfunartekjur heimilanna ekki hrokkið fyrir neyslu þeirra, hvað þá staðið undir heildarútgjöldum. Skuldirnar hafi því hlaðist upp og heimilin séu orðin viðkvæmari en áður fyrir sveiflum í tekjum, verðlagi, gengi og húsnæðisverði. „Fjármálaleg skilyrði heimilanna hafa síðan versnað mikið undanfarna mánuði. Útlánsvextir hafa hækkað, verðbólga ýtt upp eftirstöðvum skulda og gengisfall krónunnar aukið greiðslubyrði gengisbundinna lána. Í þessu ljósi er eðlilegt að spyrja hvort heimilin séu líkleg til að lenda í greiðsluerfiðleikum á næstunni og þá hvernig þau eru í stakk búin til að takast á við þá," segir ASÍ.Harðnar á dalnumASÍ tekur undir með greiningardeild Glitnis sem sagði fyrr í dag að nú harðnaði á dalnum og í hönd færi snörp aðlögun hagkerfisins. ASÍ segir hagsveiflu síðustu ára enda með hefðbundnum hætti: gengisfalli, mikilli verðbólgu, samdrætti í atvinnu og minnkandi kaupmætti.„Gagnvart þessari stöðu standa stjórnvöld ráðalítil. Þær raddir gerast því æ háværari að mikilvægt sé nú að skoða af fullri alvöru inngöngu í Evrópusambandið og í framhaldinu að taka upp evru," segir ASÍ og bendir á að ákvörðun um ESB-aðild beri að taka með langtímasjónarmið að leiðarljósi.„En ef við teljum að langtímahagsmunum okkar sé best borgið innan Evrópusambandsins og með upptöku evru þá er ekki eftir neinu að bíða því að til skamms tíma yrðu áhrifin jákvæð. Með því að stefna að evruupptöku fælist viss skuldbinding um að við ætluðum að ná tökum á efnahagsstjórninni og ákveðið ankeri fælist í því aðlögunarferli sem við yrðum að hefja strax.Óháð aðsteðjandi efnahagsvanda er gagnlegt að líta um öxl í lok hagsveiflunnar og skoða hvernig þjóðfélagið hefur þróast á undanförnum árum," segir enn fremur í vorskýrslunni.
Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Innlent „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Innlent Fleiri fréttir Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Sjá meira
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent