Innlent

Leggur fram framkvæmdaáætlun um barnavernd

MYND/GVA

Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingmálaráðherra leggur fram á Alþingi í dag tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun ríkisins í barnavernd. Þetta er í fyrsta sinn sem slík áætlun er lögð fram eftir því sem segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Markmið félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Barnaverndarstofu með framkvæmdaáætluninni er að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega og árangursríka aðstoð.

Í framkvæmdaáætluninni eru ýmis nýmæli, svo sem verkefni um þróun gæðastaðla um vistun barna utan heimilis og eftirlit með vistun barna utan heimilis. Þá er í áætluninni kveðið á um ný úrræði sem efla þjónustu, svo sem ný meðferðarúrræði, þ.e. fjölþáttameðferð (MST) og foreldrafærniþjálfun (PMT).

Í fjölþáttameðferð felst að glímt er við hegðunarraskanir unglinga í nærumhverfi þeirra, þ.e. meðferð án þess að fjarlægja barn af heimili. Í foreldrafærniþjálfun felst að foreldrum standi til boða uppeldisráðgjöf og þjálfun í foreldrafærni þar sem einkum verði lögð áhersla á fræðslu og ráðgjöf fyrir foreldra fyrsta barns, foreldra barna á unglingsaldri og foreldra barna með sérþarfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×