Lífið

Skákhátíð Hróksins á Grænlandi hafin

Skákhátíð Hróksins hófst í dag. Mynd/ godurgranni.blog.is
Skákhátíð Hróksins hófst í dag. Mynd/ godurgranni.blog.is

Skákhátíð Hróksins á Grænlandi 2008 hófst í dag, í þremur þorpum á austurströndinni. Þetta er sjötta árið í röð sem liðsmenn Hróksins efna til hátíðar fyrir börn á Grænlandi.

Skákhátíð Hróksins nær að þessu sinni til þorpanna Kulusuk, Tasiilaq og Kuummiit, og nær hámarki um næstu helgi þegar sjötta alþjóðamót Hróksins á Grænlandi verður haldið í Tasiilaq. Hróksmenn héldu fyrsta skákmótið í sögu Grænlands árið 2003.

Í tilkynningu frá Hróknum segir að hátíðin nú feli í sér kennslu, fjöltefli, barnaskákmót og fleiri viðburði í þorpunum þremur. Á miðvikudag verði barnaskákmót í öllum þorpunum þremur og gert sé ráð fyrir að hátt í 200 grænlensk börn taki þátt í mótunum.

Þá verði skákmótið um næstu helgi jafnframt afmælismót Sigurðar Péturssonar, Ísmannsins í Kuummiit, sem hafi verið ómissandi hjálparhella við starfið á Grænlandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.