Verðbólgan rýkur upp 12. apríl 2008 18:51
Allt stefnir í að verðbólgan fari yfir 10 prósent við næstu mælingu og verði sú mesta í tæplega tuttugu ár. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir óskynsamlegt að hækka laun jafnvel þótt verðbólga fari í 11 prósent. Það er dregin upp dökk mynd af í íslensku efnhagslífi í nýjasta hefti Peningamála Seðlabankans. Gert er ráð fyrir miklum samdrætti í einkaneyslu á næstu mánuðum, lækkun ráðstöfunartekna, allt að 30 prósent lækkun húsnæðisverðs og 11 prósenta verðbólgu í lok þessa árs. Þrátt fyrir að Seðlabankinn hafi hækkað stýrivexti tvisvar á síðastliðnum þremur vikum virðist ekki draga úr verðbólgu. Frá því um mitt síðasta ár hefur verðbólgan verið á hraðri uppleið og mældist hún 8,7 prósent í mars. Greiningardeildir bankanna spá nú því að við næstu mælingu verði verðbólgan komin yfir 10 prósent. Gangi sú spá eftir er um ræða mestu verðbólgu sem mælst hefur hér á landi í nærri tvo áratugi. Ljóst er að þetta mun setja verulegt strik í reikninginn varðandi kjarasamninga og að öllu óbreyttu mun því reyna á endurskoðunarákvæði þeirra. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdstjóri Alþýðusambandsins, sagði í samtali við fréttastofu ljóst að kjarasamningar verði í uppnámi gangi verðbólguspá Seðlabankans eftir. Sjálfur telur Seðlabankinn miklar líkur á að semja verði um viðbótarhækkun launa vegna verðbólguhorfa. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulílfsins, segir óráðlegt að fara út í launahækkanir. Hann segist ekki vera tilbúinn að skrifa upp á verðbólguspá Seðlabankann. „Ef verðbólgan verður 11 prósent þá er ég heldur ekki á þeirri skoðun að það verði skynsamlegt að hækka launin." Vilhjálmur segir marga þætti vinna gegn verðbólguspánni, þar á meðal lækkun fasteignaverðs og skortur á lánsfé.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira