Innlent

Mótorhjólamaður alvarlega slasaður á gjörgæslu

Maðurinn var fluttur á slysadeild með þyrlu.
Maðurinn var fluttur á slysadeild með þyrlu.

Karlmaður á þrítugsaldri liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild eftir mótorhjólaslys skammt frá Blönduósi í dag. Samkvæmt vakthafandi lækni á deildinni er maðurinn með alvarlega áverka á höfði og er haldið sofandi í öndunarvél. Enn er verið að gera rannsóknir á manninum.

Slysið varð þegar maðurinn var á mótorhjóli í malarbingum skammt frá afleggjaranum til Skagastrandar. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Blönduósi virðist sem hann hafi dottið og orðið undir mótorhjólinu. Hann var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans í eftirmiðdaginn og var kominn þangað rétt undir kvöldmatarleitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×