Viðskiptaráðherra heimsækir Kína 12. apríl 2008 14:36 Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. MYND/GVA
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra heldur í opinbera heimsókn til Kína í dag. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að heimsóknin sé farin til að endurgjalda heimsókn viðskiptaráðherra Kína til Íslands í júní í fyrra. Ráðherrann mun heimsækja ráðherra iðnaðar- og viðskiptamála og aðstoðarráðherra utanríkisviðskiptamála. Auk formlegra samskipta við stjórnvöld verða ýmis íslensk fyrirtæki heimsótt í Hong Kong, Zhongshan og Peking. Tilgangur ferðarinnar er meðal annars að stofna til frekari viðræðna við kínversk stjórnvöld um sameiginlega viðskiptahagsmuni og treysta viðskiptatengsl Íslendinga og Kínverja, segir í tilkynningu viðskiptaráðuneytisins. Í ljósi ástands mannréttindamála í Kína, og ekki síst ástandsins í Tíbet, muni viðskiptaráðherra taka þau mál upp í viðræðum hans við kínverska ráðamenn. Íslensk stjórnvöld hafi áður tjáð Kínverjum þá afstöðu sína að það sé þjóðréttarleg skylda Kínverja að virða mannréttindi í Tíbet. Þessi afstaða verði frekar áréttuð í ferðinni og áhersla lögð á hve órjúfanlegum böndum viðskiptafrelsi, upplýsingafrelsi og mannréttindi eru tengd. Af því tilefni hafi verið óskað eftir sérstökum fundi um mannréttindamál með aðstoðarutanríkisráðherra Kína.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Erlent Fleiri fréttir Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Sjá meira