Sinnuleysi stjórnvalda í efnahagsmálum 12. apríl 2008 12:14
Stjórnvöld hafa sýnt sinnuleysi gagnvart versnandi horfum í efnhagsmálum að mati framkvæmdastjóra Alþýðusambandsins. Hann segir ljóst að kjarasamningar verði í uppnámi gangi verðbólguspá Seðlabankans eftir. Gert er ráð fyrir því að verðbólga verði 11 prósent í lok þessa árs samkvæmt verðbólguspá Seðlabankans sem birt í Peningamálum á fimmtudaginn. Verðbólguviðmið í nýgerðum kjarasamningum er hins vegar 5,5 prósent og því er ljóst að gangi spá Seðlabankans eftir mun reyna verulega á forsendur kjarasamninga. Nú mælist verðbólgan 8,7 prósent. Þá segir einnig í Peningamálum Seðlabankans að miklar líkur séu á því að endurskoðunarákvæði kjarasamninga verði virk í ljósi verðbólguhorfa og heimilt verði að semja um viðbótarhækkun launa. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, sagði í samtali við fréttastofu ljóst að gangi spá Seðlabankans eftir verði kjarasamningar í uppnámi. Hann bendir hins vegar á að menn hafi áður staðið frammi fyrir verri spám og reynslan hafi sýnt að með samstilltu átaki stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sé hægt að koma í veg fyrir að þær rætist. Gylfi segir stjórnvöld hins vegar hafa sýnt fullkomið sinnuleysi í þessu máli og bendir á því samhengi að samráðsvettvangur ríkisstjórnarinnar um mótun efnahagsstefnunnar hafi ekki verið kallaður saman síðan í júlí í fyrra.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Sjá meira