Ferðakostnaður og dagpeningar vitna um ráðdeild borgarstjóra 28. febrúar 2008 23:40
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hefur í 18 ára tíð sinni í borgarstjórn lagt áherslu á ráðdeild og aðhald og um það vitna ferðakostnaður hans, dagpeningar og annar kostnaður. Þetta kemur fram í bókun borgarstjóra í tengslum við áform um sparnað við yfirstjórn borgarinnar. Minnihlutinn spyr hvort sparnaðaraðgerðir í nefndum og ráðum tengist erfiðleikum nýs meirihluta á dögunum að manna þær. Eins og fram kom fyrr í dag var samþykkt á fundi borgarráðs tillaga borgarstjóra um að samhliða þriggja ára áætlun sé nauðsynlegt að skoða aðgerðir sem leitt geti til sparnaðar við yfirstjórn borgarinnar. Sérstaklega eigi þetta við um rekstur Ráðhúss Reykjavíkur, kostnað við nefndir og ráð borgarinnar og aðrar leiðir sem færar geti verið án þess að það hafi áhrif á þjónustu við borgarbúa. Var stjórnkerfisnefnd falið að vinna tillögur um sparnaðaraðgerðir. Við þessa tillögu vildu borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknarflokks bóka að það væru fögur fyrirheit að að fara af stað með góðu fordæmi um ráðdeild og sparnað í yfirstjórn borgarinnar. ,,Það vekur hins vegar upp spurningar, hvers vegna borgarstjóri tiltekur sérstaklega rekstur við nefndir og ráð, en ekki í eigin ranni. Lýðræðisleg umræða og ákvörðunartaka í nefndum og ráðum er án efa ekki að ríða baggamuninn í rekstri borgarinnar. Skemmst er að minnast ráðleysis meirihlutans við mönnun í nefndir og því vaknar spurning hvort það sé einstök tilviljun að beita eigi sparnaðarhnífnum þar? Áherslur meirihlutans um miðstýringaráráttu kemur glögglega fram í þriggja ára áætlun og veldur áhyggjum hvort vandræðaganginn eigi að fela bak við luktar dyr," segir í bókuninni. Í framhaldi af þessu lét borgarstjóri bók að það væri mikilvægt að kjörnir fulltrúar borgarinnar sýndu ráðdeild og aðhald í fjármálum borgarinnar. ,,Borgarstjóri hefur verið í þjónustu borgarbúa sem kjörinn fulltrúi í 18 ár, nú síðast sem borgarstjóri. Allan tímann hefur hann lagt sérstaka áherslu á aðhald og ráðdeild við ráðstöfun almannafjár í þágu kjörinna fulltrúa borgarinnar og vitna útgjöld vegna ferðakostnaðar hans, dagpeninga og annars kostnaðar um það," segir í bókun Ólafs Friðriks Magnússonar borgarstjóra.
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu