Vélritar 245 orð á mínútu með yfir 99% nákvæmni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. júlí 2008 11:12 MYND/Breki Logason
Réttarritarinn Melanie Humphrey-Sonntag, sem er þrefaldur Illinois-meistari í hraðritun og vélritar að meðaltali 245 orð á mínútu, stefnir nú á Bandaríkjameistaramótið í réttarhraðritun í Anaheim í Kaliforníu. Nákvæmni Humphrey-Sonntag mælist 99,193 prósent sem táknar að öllum líkindum að hún gerir ekki margar innsláttarvillur. Humphrey-Sonntag hefur starfað við fagið síðan 1977. Hún var framhaldsskólanemi í Wyoming þegar maður frá réttarritaraskóla í Denver kom í heimsókn til að svipast um eftir efnilegu fólki í fagið. Þar sem Humphrey-Sonntag hafði lært vélritun í skólanum og farist það nokkuð vel ákvað hún að slá til. Leyndardómurinn fólst auðvitað ekki í neinu öðru en þrotlausri æfingu. „Ég tileinkaði mér mjög góða aðferð með miklum orðastyttingum. Þetta var auðvelt fyrir mig þar sem ég gat einbeitt mér algjörlega að þessu fagi án þess að nokkuð annað væri að trufla mig," útskýrði hún. Kynntist eiginmanninum í hraðritunarkeppni Humphrey-Sonntag keppti í fyrsta sinn í réttarhraðritun árið 1990 en það eru Samtök réttarritara í Bandaríkjunum sem hafa veg og vanda af keppninni. Það var einmitt á þeirri samkomu sem hún kynntist tilvonandi eiginmanni sínum, Gary Sonntag, en fjölskylda hans hefur starfað við hraðritun á ýmsum vettvangi mann fram af manni síðan 1880. Þau vélritararnir urðu hjón og stofnuðu fyrirtækið Sonntag Reporting Service og tóku að fást við hvort tveggja, lausablaðamennsku og hraðritunarkennslu. Gary lést eftir hjartaáfall árið 2005 og hefur ríkishraðritunarkeppnin í Illinois verið nefnd í höfuðið á honum æ síðan. Ekkja hans hefur borið sigur úr býtum í þeirri keppni þau þrjú ár sem síðan eru liðin. Chicago Tribune greindi frá.
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Tíska og hönnun Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf „Þetta parísarhjól sökkar“ Menning Fleiri fréttir Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Sjá meira