Brýnt að mæta vaxandi þörf fyrir leiguhúsnæði 2. desember 2008 15:31 Jórunn Frímannsdóttir.
Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir brýnt að mæta vaxandi þörf fyrir leiguhúsnæði í borginni. Þetta kom fram í máli Jórunnar á borgarstjórnarfundi sem nú stendur yfir. Í tilkynningu frá borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins segir að Jórunn hafi á fundinum greint frá því að meirihluti sjálfstæðis- og framsóknarmanna í velferðarráð Reykjavíkurborgar hafi lagt það til að auglýst verði eftir leiguíbúðum á almennum markaði til endurleigu fyrir þá sem eru á biðlista eftir húsnæði á vegum Velferðasviðs. „Hún greindi einnig frá því að á vettvangi velferðarráðs færi fram góð samvinna meirihluta og minnihluta ráðsins um útfærslu tillögunnar. Jórunn segir tillöguna koma til móts við þá sem eru í húsnæðisvanda og eru á biðlistum eftir húsnæði hjá Félagsbústöðum." Þá segir að meirihluti Velferðaráðs Reykjavíkur hafi lagt til á fundi sínum 26. nóvember síðastliðinn að Félagsbústaðir auglýstu eftir leiguíbúðum á almennum markaði til endurleigu fyrir þá sem eru á biðlista eftir húsnæði hjá Velferðarsviði. „Tillagan felur í sér að leitað verði eftir tilboðum frá eigendum íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu sem uppfyllir þau skilyrði sem Félagsbústaðir hf gera til íbúðarhúsnæðis. Um geti verið að ræða fjölbreytta stærð og gerð leiguhúsnæðis auk íbúða fyrir eldri borgara. Leitast verði við að tryggja félagslegan fjölbreytileika við val á húsnæði." Sviðsstjóra Velferðarsviðs og Framkvæmdastjóra Félagsbústaða hf. yrði falið að útfæra auglýsingu og reglur um leigu og leigusamninga. Reglur um leigu og gerð leigusamninga kæmu til samþykktar velferðarráðs.
Mest lesið Fimm handteknir í aðgerðum sérsveitar Innlent Kynnir stríðsmálaráðuneytið til leiks Erlent Hefur sætt umsáturseinelti í 14 ár: „Þetta hefur bara rústað lífi mínu“ Innlent Stefna um mikla og hraða fólksfjölgun „alið á stéttaskiptingu á Íslandi“ Innlent Tveir á sjúkrahús eftir harðan árekstur Innlent „Ekkert óeðlilegt við það að endurskoða þetta kerfi“ Innlent Vegurinn yfir Kjöl gerir ferðalöngum lífið leitt Innlent Öryrkjar í hlutastarfi oft tekjuhærri en fólk í fullu starfi Innlent Ættum að fara varlega í orkudrykki með sætuefnum Innlent Guðrún Björk Kristmundsdóttir hjá Bæjarins beztu er látin Innlent Fleiri fréttir „Ekkert óeðlilegt við það að endurskoða þetta kerfi“ Tveir á sjúkrahús eftir harðan árekstur Vegurinn yfir Kjöl gerir ferðalöngum lífið leitt Stefna um mikla og hraða fólksfjölgun „alið á stéttaskiptingu á Íslandi“ Fimm handteknir í aðgerðum sérsveitar Ættum að fara varlega í orkudrykki með sætuefnum „Mér fannst þetta vera svolítil vonbrigði“ Allt tiltækt slökkvilið kallað út vegna elds í íbúð Hefur sætt umsáturseinelti í 14 ár: „Þetta hefur bara rústað lífi mínu“ Öryrkjar í hlutastarfi oft tekjuhærri en fólk í fullu starfi Ofsótt af eltihrelli sem enn gengur laus Kvenmannshár í farangurshlera reyndist vera hrekkjavökuskraut Formannsslagur í vændum hjá Ungu jafnaðarfólki Móðirin á Edition gengur laus Fjórðungur drekki orkudrykki daglega Líkur á nýju eldgosi meiri í seinni hluta september Boða mann til landsins vegna líkamsárásar þegar hann var sextán ára Snorri rýfur þögnina: Viðbrögðin staðfesti áhyggjur af þöggun „Fáum enn á borð til okkar atriði sem maður missir hökuna yfir“ Stjórn Samtakanna ´78 fordæmir hótanir í garð Snorra og fjölskyldu Feðgar alsælir með fyrsta rafmagnsvörubílinn Segir ómögulegt að spá fyrir um kostnað vegna starfslokanna Jarðskjálfti að stærð 3,7 í norðvestanverðri öskju Bárðarbungu Vildi enga „lobbýista“ í nýskipað atvinnustefnuráð „Ætlar þú að græða á spilafíklum? Bara svo Excel og bankinn líti vel út?“ „Við viljum að fjölskyldan fari saman heim“ Innkalla Ashwagandha vegna mögulegs jarðhnetusmits Forsætisráðherra segir tíma stórframkvæmda runninn upp Sérsveitin vaktaði heimili Snorra og fjölskyldu í nótt Engan sakaði þegar eldur kviknaði í bát út af Tjörnesi Sjá meira