Samfylkingin á Akranesi vill endurskoðun á stjórn Seðlabankans 2. desember 2008 21:23 Samfylkingin á Akranesi vill endurskoða bankaráð og bankastjórn Seðlabankans.
Samfylkingarfélagið á Akranesi telur að í kjölfarið á bankahruni og gjaldeyriskreppu hafi traust almennings á því stjórn- og eftirlitskerfi sem átti að tryggja öryggi fjármálakerfisins gersamlega brostið. Félagið sendi frá sér ályktun nú í kvöld þar sem meðal annars kemur fram að trúverðugleiki stjórnmálamanna og Alþingis hafi einnig beðið mikið tjón. „Samfylkingin var stofnuð til að vera boðberi nýrra og opnari stjórnarhátta. Það er því hlutverk hennar að leiða endurreisnarstarfið og það uppgjör við mistök í fortíð og nútíð sem óumflýjanlegt er," segir í ályktuninni. „Samfylkingin á Akranesi telur að þær pólitísku forsendur sem lágu til grundvallar ríkisstjórnarsamstarfi Samfylkingarinnar við Sjálfstæðisflokkinn séu nú gjörbreyttar. Samfylkingin á Akranesi telur nauðsynlegt að flokkurinn beiti sér nú af afli fyrir endurskoðun peningastefnu og gjaldmiðilsmála en jafnframt fyrir tafarlausri endurnýjun í fjármálaeftirliti, bankaráði og bankastjórn Seðlabankans. Hraða verður rannsókn á bankahruninu og fylgja því fast eftir að þeir axli ábyrgð sem hana bera. Samfylkingin á Akranesi leggur sérstaka áherslu á forystu flokksins fyrir umræðu um aðild að Evrópubandalaginu. Í ljósi nýrra aðstæðna telur hún að ef samstarfs-flokkurinn í ríkistjórn tekur ekki afstöðu með hugmyndum Samfylkingarinnar í Evrópumálum sé hann í raun að slíta stjórnarsamstarfinu. Um leið leggur þetta Samfylkingunni þá skyldu á herðar að tryggja þjóðareign á auðlindum landsins með ákvæði í stjórnarskrá og að þess eignarhalds verði gætt að fullu fyrir hönd þjóðarinnar. Takist þetta ekki þarfnast Alþingi leiðsagnar þjóðarinnar og að kosningar verði því að fara fram í síðasta lagi um mitt ár 2009. Á þeim erfiðu tímum sem nú blasa við ber jafnaðarmönnum að standa vörð um heimilin, atvinnulífið í landinu og velferð þjóðarinnar. Hafna skal með öllu kröfum, sem stefna velferðarkerfinu í hættu og leita strax allra leiða til þess að draga úr atvinnuleysi og níðþungri skuldabyrði almennings. Öllu verður til að kosta að afstýra fjöldagjaldþrotum heimilanna í landinu. Frá þessum markmiðum má ekki hvika."
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira