Innlent

Deilt um fundartíma á Alþingi

MYND/GVA

Þingmenn Vinstri - grænna og Framsóknarflokks deildu hart á forseta Alþingis við upphaf þingfundar í dag vegna óvissu um lengd þingfundar.

Starfandi þingforseti, Einar Már Sigurðarson, lagði fram tillögu um að þingfundurinn gæti staðið þar til dagskrá hans væri tæmd. Þingmenn Vinstri - grænan vildu hins vegar vita hversu langur yrði og bentu á að forseti þingsins, Sturla Böðvarsson, hefði lýst því yfir að næturfundir ættu að heyra sögunni til. Bentu þeir á að þingfundur hefði í staðið til þrjú í nótt og spurðu hvort fundurinn í dag ætti að standa fram á nótt.

Þá sagði Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, að umdeild mál væru nú til umræðu, þar á meðal frumvarp um framhaldsskóla sem stjórnin hefði viljað keyra í gegn í nótt. Síðast í gær hefði Félag framhaldsskólanema sent frá sér ályktun þar sem lagt væri fast að þingmönnum að bíða með að samþykkja frumvarpið. Taldi Siv ekki hægt að halda fund til þrjú síðastliðna nótt og fara svo aftur yfir miðnætti í kvöld.

Einar Már Sigurðarson, forseti þingsins, vísaði til þingskaparlaga um að forseti gæti lagt fram tillögu um lengd fundartíma án fyrirvara og því væri ekki um neina nýjung að ræða. Hann var þá sakaður um að geta ekki lesið þingsköp og að fara gegn þeim.

Í atkvæðagreiðslu um málið var samþykkt að fundurinn stæði þar til dagskrá væri tæmd með 27 atkvæðum gegn 15. Í kjölfar þess spunnust frekari umræður um málið og kröfðust stjórnarandstæðingar þess að fá að vita hversu lengi fundur stæði.

Stjórnarþingmenn, þeir Lúðvík Bergvinsson og Bjarni Benediktsson, mótmæltu þeim fullyrðingum Vinstri - grænna að þingfundir um nætur væru ekki heimilir. Hins vegar hefði verið samið um að þeir yrðu gerðir að undantekningu. Það væri því rangtúlkun á þingsköpum að það væru ekki heimildir fyrir því að halda langa þingfundi.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði stjórnarandstöðuna vera með leikrit sem ekki væri samboðið Alþingi. Nýju þingskaparlögin hefðu bætt vinnufyrirkomulag á Alþingi og einungis tvisvar hefðu verið næturfundur frá því að þau tóku gildi. Bað hún þingmenn að vinna eins og manneskjur.

Ásakanir um hroka og valdníðslu gengu á vígsl á milli stjórnarliða og stjórnarandstöðu og hófst dagskrá fundar ekki fyrr en um 11.20 eða nærri klukkustund eftir að þingfundur hófst. Einar Már Sigurðarson hefur boðað þingflokksformenn til fundar í hádeginu til þess að reyna að ná sátt um fyrirkomulag þingstarfa á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×