Lífið

Bubbi rómantískur - fór til Parísar í brúðkaupsferð

Bubbi Morthens og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir. MYND/365.
Bubbi Morthens og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir. MYND/365.

Að sögn Bubba Morthens, sem gekk að eiga Hrafnhildi Hafsteinsdóttur um helgina á Reynivöllum í Kjós, eru nýgift hjónin stödd í París sem er fræg borg fyrir sögu sína, rómantík og ástríðu.

„Við erum glöð. Ætlum að vera hér fram yfir helgina með okkar eigin leiðsögumann í 27 stiga hita, sól og blíðu," segir Bubbi þegar hann er spurður hvernig hann og Hrafnhildur ætla að eyða hveitibrauðsdögunum í París.

Nýgift brúðhjónin njóta nú samverunnar í þessari skemmtilegu borg sem er fræg fyrir Eiffel-turninn.

Bubbi er rómantískur maður, á því leikur enginn vafi, því brúðkaupið var einstaklega fallegt og rómantískt. Dóttir Bubba söng í kirkjunni og söngkonan Ragnheiður Gröndal að sama skapi. Bubbi flutti síðan frumsamið lag til Hrafnhildar í kirkjunni.

Bubbi og Hrafnhildur njóta nú samverunnar í þessari skemmtilegu borg sem er fræg fyrir Eiffel-turninn, Sigurbogann og iðandi næturlífið á Champs Elyssées.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.