Guðlaugur Þór kynnir heilsustefnu 18. nóvember 2008 15:38 Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnti í dag heilsustefnu sína á fundi þar sem voru saman komnir flestir þeir sem taka þátt í að hrinda stefnunni í framkvæmd. Í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu segir heilbrigðisráðherra að heilsustefnan sé liður í því að geta veitt heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða. Snar þáttur í því væri að leggja stóraukna áherslu á forvarnir á öllum sviðum og stuðla að heilbrigðari lífsháttum einstaklinganna. „Sagði ráðherra það brýnt að skapa þjóðfélag þar sem fólk ætti þess auðveldlega kost að taka heilsusamlegar ákvarðanir, einkum með geðrækt, næringu og hreyfingu í huga,“ segir í tilkynningunni. Samfara kynningunni skuldbundu fjölmargir aðilar sig, með undirritun sérstakrar yfirlýsingar, að taka virkan þátt í að hrinda stefnunni í framkvæmd. Yfirlýsingin er svo hljóðandi: „Markmið heilsustefnunnar er að skapa samfélagslegar forsendur sem stuðla að bættri heilsu allra landsmanna. Öflugt samfélag byggir á góðu heilsufari og góðri líðan landsmanna. Því er afar brýnt að um heilsustefnuna sé breið samstaða og hún höfði til sem flestra, einstaklinga og hópa og hvetji þá til virkni. Þannig mun heilsustefnan hafa áhrif til eflingar samfélagsins í heild. Við undirrituð styðjum Heilsustefnuna, þá aðgerðaráætlun sem lögð er fram til kynningar, og viljum leggja okkar af mörkum til að stuðla að heilbrigðari lífsháttum landsmanna.“ Það voru ýmis félagasamtök, sveitarfélög, áhugahópar og fleiri sem rituðu undir yfirlýsinguna á fundinum í dag. „Heilbrigðisráðherra lagði áherslu á mikilvægt framlag þriðja geirans til almannaheilla í þessu sambandi. Hann sagði þriðja geirann samanstanda af ýmsum frjálsum félagasamtökum og sjálfseignarstofnunum, sem tilheyrðu hvorki einkageiranum, þar sem fyrirtæki eru rekin með hagnað að leiðarljósi, né opinberum rekstri. Innan þriðja geirans störfuðu fjölmörg samtök og félög sem sinntu afar mikilvægum verkefnum á sviði lýðheilsu- og heilbrigðismála,“ segir í tilkynningunni. „Góð heilsa er mikilvæg undirstaða lífsgæða. Með samstilltu átaki getum við ekki aðeins bætt heilsufar þjóðarinnar heldur einnig orðið öðrum þjóðum fyrirmynd,“ sagði heilbrigðisráðherra þegar hann kynnti stefnuna.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira