Stjórntækin vegna stöðu bankanna til í Seðlabankanum 18. nóvember 2008 13:21
Yngvi Örn Kristinsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, segir þau stjórntæki sem hafa þurfti til að bregðast við stöðu bankanna vera til í Seðlabankanum. Davíð Oddsson seðlabankastjóri fór í ræðu sinni á fundi Viðskiptaráðs í morgun yfir bankahrunið og sagði ríkisstjórnina, Fjármálaeftirlitð og bankana ekki hafa sinnt ítrekuðum viðvörunum Seðlabankans. Davíð sagði einnig að Seðlabankinn hefði ekki haft þau þau úrræði í bankaeftirliti sem til hefði þurft heldur Fjármálaeftirlitið. Bankinn hefði til að mynda ekki getað stöðvað stofnun útibúa í útlöndum á vegum viðskiptabankanna. Yngvi Örn, sem tók þátt í pallborði á fundinum í morgun, bendir á að fundurinn hafi snúist um úrlausn fjármálakreppunnar en ræða bankastjóra Seðlabankans hafi mest snúist um aðdragandann og hverjir bæru ábyrgð á stöðunni. Á henni virtust allir aðrir bera ábyrgð en Seðlabankinn. „Eitt af því sem ég benti á er að Seðlabankinn er birgur af stjórntækjum sem hefði mátt beita til að bregðast við stöðu bankanna. Seðlabankinn getur stjórnað bindiskyldu bankanna og hann hafði heimild til þess að setja á þá lausafjárreglur þannig að þeir legðu meira til hliðar af lánum til þess að mæta hugsanlegum erfiðleikum. Stjórntækin eru hvergi betri en í Seðlabankanum," segir Yngvi. Um lausnir í yfirstandandi kreppu segir Yngvi að þær liggi á borðinu. Seðlabankinn og fjármálaráðuneytið hafi óskað eftir aðstoð hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og þar liggi fyrir efnahagsáætlun til næstu þriggja ára. „Það er ekki um annað að ræða en að fylkja sér á bak við hana," segir Yngvi. Næstu verkefni séu að koma krónunni í lag og bregðast við vanda fyrirtækja og heimila.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Innlent Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Sjá meira