Nýtt bréf frá Bjarna Harðarsyni 18. nóvember 2008 13:26 Bjarni Harðar ásamt félögum á Sunnlenska bókakaffinu.
Eftir undangengna daga má telja næsta víst að bréf frá Bjarna Harðarsyni í ritstjórnarpósthólfum séu opnuð fljótt og örugglega. Bjarni hefur nú snúið aftur til fyrri starfa sem bóksali, og farinn að senda frá sér tilkynningar sem slíkur. Vísi barst svohljóðandi bréf í dag, í þetta sinn sannarlega ætlað fjölmiðlum: „Sælir kæru fjölmiðlamenn. Ég get ekki ætlast til jafn mikillar athygli nú eins og síðast þegar ég notaði þetta snilldarlega póstsendingarkerfi til að koma tilkynningu á alla fjölmiðla. En engu að síður væri mér þægð í að þið lituð með velþóknun til þessa nýja starfs og birtuð eftirfarandi." „Kær kv. -b." Og úr því hefð hefur skapast fyrir því að birta bréf frá Bjarna er okkur að sjálfsögðu ljúft og skyld að vekja athygli á birta tilkynninguna, sem er eftirfarandi: Einar Kárason rithöfundur verður á fyrsta upplestrarkvöldi vetrarins í Sunnlenska bókakaffinu, fimmtudagskvöldið 20. nóvember klukkan 20:30. Auk Einars mun skáldkonan Unnur Sólrún Bragadóttir lesa úr nýrri ljóðabók sinni, kærleikskitl - óbærileg lífshamingja. Þetta er níunda ljóðabók Unnar. Bókin skiptist í þrjá hluta, Einsöng - barn er fætt - fjöldasöng. Fyrsti hlutinn inniheldur ljóð almenns eðlis, annar hlutinn hefur að geyma jólaljóð og sá þriðji tengist árstíðunum og því sem þeim fylgja. Einar Kárason þarf varla að kynna fyrir lesendum en hann er eitt fremsta sagnaskáld þjóðarinnar í bráð og lengd. Að þessu sinni kemur frá Einari bókin Ofsi sem dregur nafn sitt af einum af minnipokamönnum Sturlungu, Eyjólfi ofsa, sem stóð að Flugumýrarbrennu. Eins og í fyrra skáldverki sínu frá öld Sturlunga, Óvinafagnaði, er þessi rósturtími Íslandssögunnar tekinn meistaralegum tökum í þessari nýjustu bók Einars. Upplestrarkvöldið er öllum opið, aðgangur ókeypis og kaffiveitingar seldar vægu verði.
Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Lífið Fleiri fréttir Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Sjá meira