Dómari víkur ekki í máli gegn Jóni Ólafssyni 18. nóvember 2008 17:32 Frá þingfestingu málsins í sumar.
Hæstiréttur hefur staðfest þann úrskurð Símons Sigvaldasonar, dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, að hann víki ekki sæti í máli ákæruvaldsins á hendur Jóni Ólafssyni athafnamanni og þremur öðrum vegna meintra skattalagabrota. Eins og fram hefur komið í fréttum gaf efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra út ákæru á hendur Jóni fyrr á árinu en honum er gefið að sök að hafa svikið um 360 milljónir króna undan skatti í tengslum við rekstur Norðurljósa og tengdra félaga. Ákærurnar á hendur Jóni og þremenningunum voru þingfestar um miðjan júlí en frávísunarkrafa málsins var fyrst tekin fyrir í byrjun nóvember. Átti munnlegur málfutningur vegna kröfunnar þá að fara fram. Málið tók hins vegar óvænta stefnu í dómssal þegar verjendur í málinu fóru fram á það að málinu yrði vísað frá og dómarinn viki sæti.Var vísað til þess að Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, hefði sent dómaranum í málinu greinargerð og það stangaðist á við lög því málflutningur ætti að vera munnlegur. Dómarinn hafnaði hins vegar kröfunum um frávísun og að hann viki. Síðarnefndu kröfunni var áfrýjað til Hæstaréttar.Hann felldi úrskurð sinn í gær. Þar var fallist á með sakborningum að greinargerð saksóknara hefði falið í sér skriflegan málflutning og að ekki væri heimild til slíks samkvæmt núgildandi lögum. Á sama hátt hefðu bréf og bókanir verjenda falið í sér heimildarlausan skriflegan málflutning. Engin lagarök stæðu hins vegar til þess að fyrrgreindir hnökrar á meðferð málsins fyrir dómi leiddu til vanhæfis dómarans.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira