Fá ekki upplýsingar um GSM-síma vegna rannsóknar á ofsaakstri 18. nóvember 2008 17:21 MYND/GVA
Hæstiréttur hefur hafnað kröfu Sýslumannsins á Selfossi um að fá upplýsingar um þau GSM-tæki sem voru í notkun á Eyrarbakkavegi vestan Óseyrarbrautar á háltímakafla um miðjan dag þann 5. nóvember. Lögregla fór fram á þessar upplýsingar vegna rannsóknar á ofsaakstri tveggja manna á veginum umrætt sinn. Þeir mældust á 210 og 192 kílómetra hraða. Lögregla náði skráningarmerki annars ökumannanna, þess sem hægar fór, en hinn slapp. Vitni hafði samband við lögreglu og sagði bílnum hafa verið ekið til Þorlákshafnar og lögregla hafði upplýsingar um að ökumaðurinn hefði verið í símanum. Því vildi lögregla fá upplýsingar um þau GSM-tæki sem hefðu verið í notkun á veginum umrætt sinn. Var vísað til þess að um væri að ræða einhvern mesta hraða sem mældur hefur verið hjá lögreglunni í Árnessýslu og brot mannsins gætu varðað allt að tveggja ára fangelsi.+ Héraðsdómur Suðurlands varð við þeirri kröfu en Hæstiréttur sneri þeim dómi við. Vísaði Hæstiréttur til ákvæða stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs. Krafa lögreglunnar beindist ekki að tilteknum síma heldur öllum símum sem notaðir hefðu verið á Eyrarbakkavegi umrætt sinn og því væri ekki hægt að fallast á kröfuna.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira