Vilja aðildarviðræður við ESB og að Seðlabankastjórn víki 18. nóvember 2008 15:18 Samfylkingarfélag Borgarbyggðar vill að Davíð víki og félagar hans úr Seðlabankanum víki. .
Bankastjórn og bankaráð Seðlabanka á að víkja frá tafarlaust, hefja á aðildarviðræður við ESB og fella á eftirlaunalögin úr gildi. Nái ríkisstjórnarflokkarnir ekki saman um ofantalin atriði á Samfylkingin að slíta stjórnarsamstarfinu og stuðla að því að boðað verði til Alþingiskosninga eins fljótt og auðið er. Þetta kemur fram í ályktun sem Samfylkingarfélag Borgarbyggðar samþykkti á dögunum. Þar er sú staða hörmuð sem komin er upp í íslensku samfélagi og þess krafist að fram fari hlutlaus rannsókn á því hvað olli hruni efnahagslífsins. Þá telur félagið mikilvægt að Samfylkingin leiði það uppbyggingarstarf sem framundan er og fari á undan með góðu fordæmi með hag þjóðarinnar umfram sérhagsmuni að leiðarljósi. Samfylkingarfélag Borgarbyggðar telur að stjórnvöld þurfi að taka af skarið og grípa til eftirfarandi bráðaaðgerða til að koma til móts við kröfur almennings: · Bankastjórn og bankaráð Seðlabanka verið tafarlaust vikið frá sem og forystu fjármálaeftirlitsins þar sem þessir aðilar eru rúnir trausti bæði innanlands og utan. · Eftirlaunalögin umdeildu verði þegar felld úr gildi. Það er ólíðandi að á sama tíma og almenningur stendur frammi fyrir mestu kjaraskerðingu í manna minnum njóti æðstu ráðamenn þjóðarinnar sérréttinda. · Bankakerfið verði mannað fólki sem ekki ber á nokkurn hátt ábyrgð á þeim rekstrar- og stjórnunarafglöpum sem setti fjármálakerfi þjóðarinnar í þrot. · Gengið verði lengra við björgun heimila í landinu en aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar boðar. Leitað verði allra leiða til að koma í veg fyrir að fasteignaeigendur verði skuldaþrælar um ókomna framtíð. · Ákvörðun um að hefja aðildarviðræður við ESB liggi fyrir eigi síðar en í febrúar 2009. Samningsmarkmið verði vel skilgreind og aðildarviðræður hafnar eins fljótt og kostur er, þar sem lykiláherslan verði lögð á að tengja krónu við evru, m.a. í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að krónan verði aftur sett á flot. Slíkt hefði aðeins í för með sér enn frekari hörmungar fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu og ekki síst sveitarfélögin sem sinna helstu grunnþjónustu í hverju samfélagi.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Sjá meira