Lífið

Ásdís Rán í blaðamennsku

MYND/ArnoldStúdio
Fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir mun spreyta sig á nýjum vettvangi á næstunni. Hún greinir frá því á bloggsíðu sinni að henni hafi undanfarið borist tilboð frá hinum ýmsu dagblöðum og tímaritum um að skrifa í þau dálka um tísku, fegurð, heilsu og lífsstíl svo eitthvað sé nefnt.

Ásdís tók tilboði Monitor tímaritsins, og verður með opnu í blaðinu þar sem hún ráðleggur lesendum í vandræðum eftir bestu getu. Inn á milli býður hún svo upp á ábendingar um heilsu og fegurð fyrir bæði kynin.

Fyrsti dálkur Ásdísar verður í októberhefti tímaritsins. Þeir sem vilja leita aðstoðar hennar geta sent henni spurningar gegnum heimasíðu Monitor.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.