Forsetinn fundaði með Jórdaníukonungi 2. september 2008 10:18 Abdullah II Jórdaníukonungur kom hingað til lands árið 2000. MYND/AP
Orkumál og framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna var meðal þess sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Abdullah annar Jórdaníukonungur ræddu á fundi sínum nýverið. Forsetinn kom við í Amman á leið sinni frá Bangladess á dögunum og þáði boð konungsins um heimsókn. Fram kemur í tilkynningu forsetaembættisins að Abdullah hafi verið fyrstur þjóðhöfðingja frá Mið-Austurlöndum til að koma í opinbera heimsókn til Íslands en það var árið 2000. Þjóðhöfðingjarnir ræddu um möguleika á nýtingu jarðhita í Jórdaníu en sérfræðingar frá landinu hafa numið við Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og konungurinn heimsótti virkjunina í Svartsengi þegar hann kom til Íslands. Forseti lýsti hvernig þátttaka Íslendinga í jarðhitaverkefnum víða um heim hefur vaxið ört á undanförnum árum. Abdullah II konungur nefndi að ýmis ríki í Mið-Austurlöndum tækju þátt í fjárfestingum í Jórdaníu og gætu þau hugsanlega átt hlut að nýtingu hreinnar orku í landinu. Forseti Íslands rakti árangurinn af viðræðum sínum við forystumenn í Abu Dhabi og Katar fyrr á þessu ári. „Þá ræddu konungur og forseti um framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og aukinn stuðning Íslendinga við málefni Palestínumanna sem m.a. hefði komið fram í heimsóknum utanríkisráðherra Íslands, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, til Jórdaníu, Palestínu og Ísrael. Konungur fagnaði þessum áherslum og lýsti sig og stjórnvöld í Jórdaníu reiðubúin til ítarlegra samræðna og samvinnu við Íslendinga óháð því hvort Ísland næði kjöri í öryggisráðið," segir í tilkynningu forsetaskrifstofu.
Mest lesið Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Erlent Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Innlent Forsætisráðherra skynjar óöryggi meðal fólks Innlent Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Innlent Kindur aðstoðuðu björgunarfólk að finna afkvæmi sín Innlent Segja ásakanir á hendur séra Friðriki tómt rugl Innlent Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Veður Viðvaranir enn í gildi fyrir norðan Innlent Landskjörstjórn segir nauðsynlegt að breyta stjórnarskrá Innlent Áhyggjuefni ef raddir kvenna hætti að heyrast í þróunaraðstoð Innlent Fleiri fréttir Vill rannsaka störf sérstaks saksóknara eftir hrun Landskjörstjórn segir nauðsynlegt að breyta stjórnarskrá Elsta svæði Vopnafjarðar staðfest sem verndarsvæði Viðvaranir enn í gildi fyrir norðan Áhyggjuefni ef raddir kvenna hætti að heyrast í þróunaraðstoð Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Alda María nýr formaður Heimdallar Um 160 fatlaðir starfsmenn hjá Ás styrktarfélagi í Kópavogi Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Forsætisráðherra skynjar óöryggi meðal fólks Kindur aðstoðuðu björgunarfólk að finna afkvæmi sín Forstjóri Útlendingastofnunar vildi skýr svör frá Víði um umsókn Oscars Segja ásakanir á hendur séra Friðriki tómt rugl Lömb á kafi, útlendingaumræðan og Brynjar Karl í beinni Þungir dómar fyrir að smygla fleiri lítrum af kókaíni „Ættum frekar að láta borgina skrifa undir mannréttindasáttmála“ „Þarna er gripið fram fyrir hendurnar á Alþingi“ Gæsluvarðhald framlengt aftur Alveg gáttuð á framgöngu Víðis sem hafi brotið trúnað Landris mælist áfram í Svartsengi Vilja að Aþena fylgi mannréttindastefnu borgarinnar Hefur metnað til að leiða flokkinn þrátt fyrir slæmt gengi „Ekki hægt að segja annað en fyrirgefið“ Reyna að bjarga 100 kindum og lömbum á kafi í snjó Víðir um mál Oscars: „Réttur okkar þingmanna að hafa skoðun“ Notkun rafbyssa í samræmi við markmið Varð undir bílhræi ofan í járntætara og fær 150 milljónir „Auddi, Steindi og Egill voru í markaðsmálum“ Sakar Víði um pólitísk afskipti af máli Oscars Þurfa að gefa út ákæru á morgun ef gæsluvarðhaldið á að vera lengra Sjá meira