"Jarðýtan" ætlar að trompa Abramovich 2. september 2008 09:39 Al-Fahim og félagar ætla sér enga meðalmennsku með City
Dr Sulaiman Al-Fahim, eigandi Manchester City, ætlar að láta verkin tala þegar kemur að því að koma félaginu í fremstu röð í framtíðinni. Þessi milljarðamæringur frá Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum lagði fram meira en 100 milljón punda kauptilboð í þá Dimitar Berbatov, David Villa og Mario Gomez í gær, en svo fór að lokum að félagið keypti Brasilíumanninn Robinho frá Real Madrid fyrir 32,5 milljónir punda - hátt í fimm milljarða króna. Al-Fahim hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að gefa Roman Abramovich, eiganda Chelsea, neitt eftir þegar kemur að því að gera Manchester City að stórveldi í knattspyrnu. Hann hefur tengsl inn í konungsfjölskylduna í Abu Dhabi, en fjölskyldan er metin á 500 milljarða punda, sem er talsvert meira en þeir 23 milljarðar punda sem Roman Abramovich er metinn á. "Við höfum mikla möguleika og við viljum leika eftir það sem Abramovich gerði hjá Chelsea. Við þurfum að ná í sterka leikmenn og markaðssetja félagið betur. Við ætlum að koma því á par við Manchester United og enn lengra," sagði Al-Fahim. "Við viljum að Manchester City geti keppt um alla titla, ekki bara á Englandi, heldur í Evrópukeppni líka," sagði Al-Fahim, sem áður hafði reynt að kaupa Arsenal, Liverpool og Newcastle. "Mér líður alltaf eins og ég sé jarðýta, jarðýta sem ekur áfram yfir bíla þó þeir séu fyrir. Ef ég fæ hugmynd, verð ég að hrinda henni í framkvæmd," sagði fasteignamógúllinn Al-Fahim í samtali við Sun. Stefna nýrra eigenda City hefur verið sett á að koma liðinu í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili og því hefur verið fleygt að allt að 500 milljónum punda verði varið til leikmannakaupa til að ná því markmiði.
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira