Jón Ásgeir: Seðlabankastjóri verður að líta sér nær 18. nóvember 2008 18:13 Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs.
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, lýsir furðu sinni á ummælum Davíðs Oddssonar í ræðu hjá Viðskiptaráði í morgun. Davíð gerði þar að umtalsefni að bankarnir hefðu lánað einum manni þúsund milljarða og vísaði þar væntanlega til Jóns Ásgeirs. Jón Ásgeir segir ekki hægt eigna honum allar skuldir félaga sem tengjast honum. Um helmingur skuldanna séu ekki við innlenda banka og þá megi ekki gleyma því að það séu eignir sem koma á móti skuldunum. ,,Seðlabankastjóri er væntanlega að vísa til heildarskulda þriggja félaga sem ég og mín fjölskylda eigum mismunandi stóra eignarhluti í, sem eru Stoðir, Baugur og Landic Property. Þar erum við að tala um þrjú af tíu stærstu fyrirtækjum landsins og auðvitað eru þessi félög fjármögnuð að hluta til af viðskiptabönkum hér á landi, eins og öll íslensk fyrirtæki," segir Jón Ásgeir. Jón Ásgeir segir að efnahagsreikningar félaganna liggi fyrir. Um mitt þetta ár námu samanlagðar eignir Stoða, Baugs og Landic Property um 1200 milljörðum, eigið fé var um 300 milljarðar og skuldirnar voru um 900 milljarðar. ,,Þessi félög voru því ekki meira skuldsett en gengur og gerist." Jón Ásgeir segir að það verði einnig að hafa í huga að helmingur skuldanna er við erlenda fjármögnunaraðila enda eiga þessi félög líka miklar eignir erlendis. ,,Aðalatriðið er að samtals innlendar skuldir félaganna þriggja voru um 430 milljarðar um mitt þetta ár, sem var um 5% af heildarútlánum allra íslenskra innlánsstofnana um mitt þetta ár. Þessi félög og skuldir þeirra settu ekki íslensku bankana á hliðina, enda voru félögin öll í skilum með öll sín lán þegar það gerðist." Davíð Oddsson verður að líta sér nær, að mati Jóns Ásgeirs. ,,Seðlabankastjóri verður að líta nær sér ef hann vill finna ástæður fyrir hruni íslensks efnahagslífs."
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fleiri fréttir Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Sjá meira