Ákæra í átta liðum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 15. apríl 2008 12:07 Kannabisplöntur. Myndin tengist ekki þessu máli. MYND/Páll Bergmann
Sælgætisþjófnaður, ræktun kannabisplantna, ítrekaður akstur undir áhrifum fíkniefna og tilraun til að smygla fíkniefnum inn í fangelsið í Kópavogi er meðal þess sem tæplega fertugum karlmanni er gefið að sök í ákæru sem þingfest var í gær við Héraðsdóm Reykjavíkur. Ákæran telur alls átta liði og ná brotin yfir 13 mánaða tímabil. Fíkniefnin sem ákært er fyrir eru ýmist kannabisstönglar, kannabisgræðlingar, hass eða maríjúana en síðasttalda efninu reyndi ákærði að smygla til fanga í Kópavogsfangelsinu með því að setja efnið í sokk sem hinn síðarnefndi lét síga út um glugga á fangaklefa. Maðurinn er enn fremur ákærður fyrir ræktun kannabisplantna en í ákæru greinir að hann hafi gróðursett kannabisgræðlinga í fimm sérútbúin hólf við útjaðar lóðar sinnar. Þá er ákært fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í þrjú skipti og þar af eitt skipti fyrir að hafa haft fíkniefni í bifreiðinni við aksturinn. Að lokum er ákærða gefið að sök að hafa stolið sælgæti að verðmæti 534 krónur í verslun 11-11 og gerir Kaupás hf., rekstraraðili verslunarinnar, kröfu um skaðabætur er nema þeirri upphæð auk vaxta og dráttarvaxta. Ákæruvaldið krefst refsingar samkvæmt lögum, sviptingar ökuréttar og upptöku þeirra efna og plantna sem við sögu koma í málinu.
Mest lesið „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu metinn 4,1 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Sjá meira