Telur að undirskrift bróður á erfðaskrá hafi verið fölsuð 15. apríl 2008 12:26
Maður á Akureyri telur sig hafa orðið af stórfé þar sem undirskrift á erfðaskrá bróður hans hafi verið fölsuð. Líknarfélög missa vænan spón úr aski sínum ef þetta reynist rétt. Ólafur Ólafsson héraðsdómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra ákvað í dag að láta kalla til taugasérfræðing af Landspítalanum sem óvilhallan matsmann í máli þar sem tekist er á um hvort undirskrift hafi verið fölsuð í erfðaskrá eða ekki. Fyrir nokkrum árum lést maður á Akureyri og lét eftir sig mikla fjármuni sem hann ánafnaði líknarfélögum, Akureyrarbæ og fleiri aðilum. Jón G. Guðlaugsson, oftast kallaður Jón hlaupari á Akureyri, er hálfbróðir mannsins og telur hann að erfðaskráin hafi verið fölsuð. Hann fékk engan hlut arfsins og hefur árum saman barist fyrir því að málið verði tekið fyrir hjá dómstólum. Nú er það komið þangað en óvíst um lyktir þar sem málið er enn matsmál á þessu stigi. Það mun skýrast ekki síðar en 16. júní næstkomandi hvað Finnbogi Jakobsson, taugasérfræðingur á Landspítala, hefur að segja um undirskriftina en ef málið verður tekið fyrir og úrskurður fellur Jóni hlaupara í hag verða líknarfélög sem og fleiri aðilar af tugmilljóna fjármunum.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira