Tíðinda að vænta í skattlagningu á eldsneyti á næstunni 15. apríl 2008 14:35 MYND/Pjetur
Tíðinda er að vænta í tillögum nefndar fjármálaráðherra sem skipuð var til þess að endurskoða skattlagningu hins opinbera á olíu og bensín. Þetta kom fram í máli Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Það var Samúel Örn Erlingsson, varaþingmaður Framsóknarflokksins, sem spurði ráðherra hvort hann hygðist beita sér fyrir því að olíugjald á díselolíu yrði lækkað þannig að olían yrði aftur ódýrari en bensín. Benti hann á að þegar lög um olíugjald hefðu verið sett fyrir fjórum árum hefði meðal annars verið horft til þess að dísilbílar væru umhverfisvænni en bensínbílar. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sagði umhverfisráðuneytið ekki sýsla með skatta og gjöld en benti á að nefnd undir forystu fjármálaráðuneytisins hefði verið að endurskoða skattlagningu og gjaldtöku af eldsneyti. Hún ætti von á að niðurstöður nefndarinnar litu dagsins ljós innan nokkurra vikna og þar myndi draga til tíðinda. Alltof margir einkabílar á Íslandi Þá benti umhverfisráðherra á að síðar á þessu ári yrði tekin til umræðu aðgerðaáætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Að sjálfsögðu væri skattlagning, eins og hagrænir hvatar eða grænir skattar, umræða sem þyrfti að taka. Sagði ráðherra mjög mikilvægt fyrir stjórnvöld að setja sér skýr markmið um að draga úr mengun. Í umræðum um aðgerðaáætlunina reyndi á forgangsröðunina í samfélaginu. Þetta snerist ekki bara um að lækka skatta á bíla heldur einnig að minnka mengun bíla og fækka þeim. Það yrði þegar á reyndi svolítið sársaukafullt að horfast í augu við það að það væru „alltof, alltof, alltof," margir einkabílar á Íslandi eins og ráðherra orðaði það.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Sjá meira