Innlent

Lögreglan stöðvaði flugeldasýningu í nótt

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði menn, sem voru að halda flugeldasýningu út úr bíl á ferð um miðborgina um klukkan tvö í nótt.

Þeir voru með stóran fjölskuyldupakka frá björgunarsveitunum undir höndum og höfðu skotið drjúgum skammti úr honum, þegar leikurinn var stöðvaður.

Þeir eiga nú yfir höfði sér sektir, en slompaðir vegfarendur komust í hátíðarskap við tiltækið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×