Hefur játað á sig árás á öryggisvörð 11. apríl 2008 16:43 MYND/Valli
Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja vikna gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa slegið öryggisvörð 10-11 í höfuðið með glerflösku um síðustu helgi. Þarf maðurinn að sitja í gæsluvarðhaldi til 23. apríl. Eins og fram hefur komið var árásin fólskuleg og blæddi meðal annars inn á heila öryggisvarðarins. Læknar björguðu naumlega lífi hans en fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurði frá því á miðvikudag að erfitt sé að spá um batahorfur hans að svo stöddu. Vísað er til þess í úrskurðinum að í upptöku úr eftirlitsmyndavél í miðborginni megi sjá hvar kærði standi nokkra stund fyrir utan verslunina og virðist sem hann sé þar að fylgjast með því sem gerist inni í versluninni. Þá sjáist hvar hann taki upp flösku og bíði færis. Síðar megi sjá með hvaða hætti hann veitist að starfsmanni verslunarinnar þegar að hann komi út úr verslun 10-11 í Austurstræti. „Myndskeiðið beri að mati lögreglu með sér einbeittan ásetning til þess að fremja alvarlegt ofbeldisverk. Í ljósi þessa þyki árásin sérstaklega alvarleg og sé þá einnig litið til þess að fyrr um nóttina hafi þurft atbeina lögreglu til að fjarlægja kærða úr versluninni. Hann hafi svo komið öðru sinni að versluninni og virðist þá hafa ráðist að sama starfsmanni og áður hafði haft af honum afskipti. Af myndskeiðinu megi jafnframt ráða að engin samskipti hafi verið á milli kærða og brotaþola áður en hann hafi slegið hann af afli í höfuðið. Veruleg hætta hafi stafað af verknaðinum, þ.e. að slá annan mann í höfuðið með glerflösku, enda hafi litlu mátt muna að mannsbani yrði af völdum verknaðarins," segir í úrskurðinum. Rannsókn málsins er nánast lokið en farið er fram á gæsluvarðhald þar sem ætla verði ríkissaksóknara eitthvert svigrúm til ákvörðunar um saksókn. Maðurinn hefur játað verknaðinn í yfirheyrslu hjá lögreglu en hann segist ekki hafa farið að versluninni í þeim tilgangi að ráðast að öryggisverðinum og að hann hafi tekið flöskuna upp eftir að hann hafi séð öryggisvörðinn koma út úr versluninni. Áður hafði kærði í skýrslutöku játað brotið en þó sagt að hann myndi ekki vel eftir því.
Mest lesið Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira