Fæstar stofnanir með fullnægjandi heimild til að innheimta seðilgjald 11. apríl 2008 11:42 Íbúðalánasjóður og LÍN eru einu stofnanirnar sem hafa fullnægjandi lagaheimild til að innheimta seðilgjald. MYND/E.Ól
Að eins tvær af 44 opinberum stofnunum og fyrirtækjum sem innheimta seðilgjöld vísuðu til fullnægjandi lagaheimild til gjaldtökunnar í úttekt sem Neytendastofa réðst í fyrir viðskiptaráðuneytið. Viðskiptaráðherra beindi fyrr á árinu tilmælum til fjármálafyrirtækja að þau hættu að innheimta seðilgjöld sem neytendur hefðu ekki samþykkti. Í þeim tilvikum sem samið hafði verið um slíkt átti seðilgjaldið að endurspegla raunkostnað við útsendingu seðla. Í kjölfar ábendinga frá umboðsmanni Alþingis fól viðskiptaráðherra Neytendastofu svo að kanna í hvaða mæli opinberar stofnanir og fyrirtæki innheimtu slík gjöld. Fram kemur í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu að rúmlega 88 prósent af nærri 280 opinberum stofnunum, fyrirtækjum og hlutafélögum hafi svarað fyrirspurn Neytendastofu. Af svarendum kváðust 181 senda út kröfur og þar af 44 eða rúm 24 prósent leggja seðilgjald eða annan aukakostnað við aðalkröfu, þó ekki endilega við allar innheimtar kröfur hlutaðeigandi aðila. Viðskiparáðuneytið bendir á að umboðsmaður hafi komist að því að almennt sé opinberum stofnunum og fyrirtækjum óheimilt að leggja gjald á einstaklinga nema á grundvelli skýrrar lagaheimildar. Niðurstöður Neytendastofu eru þær að af þeim opinberu stofnunum og fyrirtækjum sem þátt tóku í könnuninni og innheimta seðilgjöld eða sambærilegar fylgikröfur hafi einungis tvær stofnanir, Lánasjóður íslenskra námsmanna og Íbúðalánasjóður, vísað til fullnægjandi lagaheimilda til gjaldtökunnar. Fram kemur í úttekt Neytendastofu að ætla megi að gjald sem opinberar stofnanir og fyrirtæki innheimta gagnvart neytendum sé mun lægra og nær raunkostnaði en sambærileg gjaldtaka á almennum samkeppnismarkaði. Nítján ætla að hætta að innheimta seðilgjöld Af þeim 44 aðilum sem innheimta seðilgjöld bjóða 32 greiðendum að semja um greiðsluleið. Þar af bjóða 14 stofnanir og fyrirtæki greiðendum upp á að greiða með öðrum hætti, án greiðslu seðilgjalds eða sambærilegs aukakostnaðar. Einkum voru boðgreiðslur, beingreiðslur, millifærslur í banka eða bein greiðsla á starfsstöð stofnunar/fyrirtækis nefnd í þessu sambandi. Þá sögðust 19 af 44 stofnunum sem innheimtu seðilgjöld aðspurð ætla að hætta gjaldtökunni, en 19 hugðust ekki hætta henni. Sex höfðu ekki tekið ákvörðun um það, þegar fyrirspurn Neytendastofu var svarað. „Neytendastofa mun fylgja málinu eftir, en lögum samkvæmt hefur stofnunin úrræði á borð við álagningu stjórnvaldssekta gagnvart lögaðilum vegna óréttmætra viðskiptahátta. Ráðherra hefur farið þess á leit við Neytendastofu að gerð verði úttekt á innheimtu seðilgjalda og sambærilegra fylgikrafna á einkamarkaði. Kannaðar skulu fjárhæðir og grundvöllur slíkrar innheimtu, þ.e. hvort innheimtan byggist á samningi milli aðila eða öðrum grundvelli, sem og hvort greiðendum bjóðist að greiða kröfur með öðrum hætti þannig að ekki komi til greiðslu seðilgjalds," segir einnig í tilkynningu viðskiptaráðuneytisins.
Mest lesið Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Innlent Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Erlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við Innlent Fleiri fréttir „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Sjá meira