Innlent

Alvarlegt umferðarslys á milli Hveragerðis og Selfoss

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. MYND/Vilhelm

Suðurlandsvegur er lokaður eftir að alvarlegt umferðarslys varð þar á kaflanum á milli Hveragerðis og Selfoss rétt fyrir klukkan átta í morgun.

Tveir slasaðir menn hafa verið fluttir í þyrlu Landhelgisgæslunnar á Slysadeild Landsspítalans og er annar þeirra alvarlega slasaður. Tveir bílanna eru fólksbílar og einn ervörubíll. Björgunarmenn eru enn á vettvangi en vegurinn með ströndinni um Óseyrarbrú er opinn.

Lögreglan á Selfossi gerir ráð fyrir að vegurinn verði lokaður að minnsta kosti til klukkan ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×