Kalla eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar 11. apríl 2008 22:03 Ingibjörg og Geir. Ungir framsóknarmenn vilja að þau geri eitthvað. Mynd/ Pjetur.
Ungir framsóknarmenn í Reykjavík kallar eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að endurheimta þann stöðugleika í efnahagslífi þjóðarinnar sem ríkti í ríkisstjórnartíð framsóknarmanna. Þetta kemur fram í ályktun sem þeir sendu frá sér í dag. „Mikilvægt er að glutra ekki árangri síðustu ára niður með aðgerðarleysi og dauflyndi. Því telja ungir framsóknarmenn í Reykjavík brýnt að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefjist nú þegar handa við að tryggja að hér verði ekki brotlending í atvinnulífinu með tilheyrandi gjaldþrotum, atvinnuleysi og landflótta. Ljóst er að stefna ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum og aðgerðir Seðlabankans í peningamálum vinna ekki saman nú um stundir og telja margir afleiðingu síðustu stýrivaxtahækkunar þá að íslenskt atvinnulíf innleiði evru án aðkomu ríkisvaldsins. Lokadagar íslensku krónunnar séu því í nánd," segir í ályktun ungra framsóknarmanna. Þá hvetja ungir framsóknarmenn í Reykjavík ríkisstjórnina til að hefja nú þegar aðildarviðræður við Evrópusambandið með inngöngu í huga. Þeir segja ljóst að staða íslensks efnahagslífs og hagsmunir þjóðarinnar kalli á að það verði gert. „Kröftugt og framsækið atvinnulíf ásamt öflugu velferðarkerfi er forsenda þess að Ísland sé samkeppnishæft við aðrar þjóðir hvað varðar aðlaðandi búsetu fyrir ungt fólk. Ef ríkisstjórnin treystir sér ekki til aðgerða verður hún að biðjast lausnar og fela ábyrgum aðilum að taka hér við stjórnartaumunum. Framsóknarflokkurinn mun ekki skorast undan í þeim efnum," segja ungir framsóknarmenn.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Maðurinn fundinn Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Innlent Fleiri fréttir Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Hámarksfjölda ökutækja náð á hádegi á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Sjá meira