Lést í umferðarslysi í Ölfusi 11. apríl 2008 11:02
Karlmaður á sextugsaldri lést í hörðum árekstri sem varð rétt fyrir klukkan átta í morgun á Suðurlandsvegi í Ölfusi á móts við Hvammsveg við Gljúfurárholt. Áreksturinn varð með þeim hætti að pallbifreið sem var á leið vestur Suðurlandsveg fór yfir á rangan vegarhelming og framan á vinstra horn vörubifreiðar sem kom á móti. Pallbifreiðin rann áfram með vinstri hlið vörubifreiðarinnar og skall framan á sendibifreiðinni sem ekið var á eftir vörubifreiðinni. Sendibifreiðin kastaðist út fyrir veg. Ökumaður hennar var fluttur með þyrlu á slysadeild Landspítala í Fossvogi þar sem hann var síðan úrskurðaður látinn. Ökumaður pallbifreiðarinnar var einnig fluttur með þyrlunni en mun ekki hafa verið alvarlega slasaður. Fulltrúi Rannsóknarnefndar umferðarslysa fór á slysavettvang. Lögreglan á Selfossi fer með rannsókn málsins og fékk á vettvang þrjá sérfræðinga sem sjá um rannsókn ökutækja, reikna út ökuhraða og mæla upp vettvang eins og segir í tilkynningu frá lögreglunni. Ekki liggur fyrir að svo komnu máli um aðdraganda slyssins annað en það að pallbifreiðin fór yfir á öfugan vegarhelming og að ökumaður vörubifreiðarinnar hafði vikið undan eins mikið og hann hafði svigrúm til. Aðstæður til aksturs voru mjög góðar, þurr vegur, veður bjart og gott. Hinn látni var karlmaður rúmlega sextugur. Suðurlandsvegur var lokaður frá klukkan átta en var opnaður rétt fyrir klukkan ellefu. Ekki var hægt að nýta Hvammsveg sem hjáleið þar sem vettvangurinn náði yfir vestari gatnamót hans og Suðurlandsvegar. Umferð var því beint um Eyrarbakkaveg og Þrengsli. Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem vitni voru að slysinu og lögregla hefur ekki þegar náð til að hafa samband í síma 480 1010. Þetta er sjötta banaslysið í umferðinni á árinu.
Mest lesið „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent Vaktin: Viðreisn velur oddvita Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Viðreisn velur oddvita „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Sjá meira