Tryggingarsjóðurinn efldur vegna Icesave 28. nóvember 2008 04:30 Slá á erlend ríki um lán svo hægt sé að mæta skuldbindingum Tryggingarsjóðs innstæðueigenda. fréttablaðið/pjetur
Leggja á Tryggingarsjóði innstæðueigenda til peninga svo sjóðurinn geti staðið skil á greiðslum til eigenda innlánsreikninga í íslensku bönkunum í útlöndum. Peningarnir eiga að fást með lánum frá ríkjum þar sem slíkum reikningum er til að dreifa. Mest er fjárþörfin vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi en að einhverju leyti vegna skuldbindinga Glitnis og Kaupþings. Í kjölfar bankahrunsins reis deila milli íslenskra stjórnvalda annars vegar og breskra og hollenskra - og síðar Evrópusambandsins - hins vegar um ábyrgðir íslenska ríkisins á Tryggingarsjóði innstæðueigenda. Í sjóðnum var aðeins brot þeirrar fjárhæðar sem bankarnir hefðu með réttu átt að greiða til hans. Íslensk stjórnvöld töldu - og telja enn - vafa leika á um ábyrgð ríkis á tryggingarsjóðum, ekki síst við hrun fjármálakerfis þjóðar. Evrópusambandið sjálft og einstök aðildarríki þess telja á hinn bóginn engan slíkan vafa uppi. Ríki beri að ábyrgjast greiðslur. Eftir flóknar og erfiðar samningaviðræður féllust íslensk stjórnvöld á þau sjónarmið, að því gefnu að við útfærslu samkomulags yrði tekið tillit til erfiðra og fordæmalausra aðstæðna Íslands og nauðsynjar þess að skuldbindingar raski ekki áætlunum um endurreisn fjármála- og efnahagskerfis landsins. Ríkisstjórnin hefur með þingsályktunartillögu óskað heimildar Alþingis til að leiða til lykta samninga við erlend ríki um málið. Í tillögunni segir að það sé mat ríkisstjórnarinnar að hagsmunum Íslands til lengri tíma litið sé best borgið með því að stjórnvöld styðji við Tryggingarsjóðinn svo hann geti ábyrgst lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um. Stendur til að gera það með lántökum frá þeim ríkjum sem hlut eiga að máli með ábyrgð íslenska ríkisins. Óvíst sé hve há þau lán þurfi að vera enda ráðist það af því að hve miklu leyti andvirði eigna bankanna mun renna til sjóðsins. Samkvæmt bráðabirgðamati Alþjóðagjaldeyrissjósins (AGS) nema heildarskuldbindingar vegna innlánsreikninga íslensku bankanna í útlöndum um 500 milljörðum króna. Líkt og greint var frá í Fréttablaðinu í gær telur sjóðurinn eignir bankanna standa undir helmingi þeirrar fjárhæðrar. Afganginn, um 245 milljarða, þurfi ríkissjóður og þar með skattgreiðendur að bera.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira