Reykjavík! og Ben Frost í eldfimt samband 8. ágúst 2008 21:48 Hljómsveitin Reykjavík! á góðri stundu í Köln í Þýskalandi. MYND/Steinþór Helgi
Hljómsveitin Reykjavík! hefur kunngjört samstarf við íslensk-ástralska hljóðlistamanninn Ben Frost! Þessi tvö eldfimustu element íslenskrar tónlistar hafa um langt skeið leitt saman hesta sína í tilraunaskyni en þetta verður í fyrsta skiptið sem samstarf þeirra er opinberlega fest á band eins og segir í tilkynningu. Áður hafði Reykjavík! tilkynnt um væntanleg samstarf við fagurkerann Valgeir Sigurðsson á næstu hljóðversbreiðskífu en samkrull þeirra gaf góða raun á sínum tíma. Að vandlega athuguðu máli ákváðu liðsmenn Reykjavík! þó að endurtekning jafngilti dauða og að þeir vildu frekar feta stíga hins óþekkta undir leiðsögn eins hæfileikaríkasta óhljóðasælkera veraldar en að stinga sér til sunds í slípaðri laug Valgeirs á nýjan leik. Þess má og geta að gítartvíeyki Reykjavík!ur, frændurnir Guðmundur Birgir og Haukur Sigurbjörn, leika jafnan undir með Frost á tónleikum og hafa í því skyni ferðast með honum um víða veröld, þannig að þeir eru ekki ókunnir listsköpun á hans forsendum. Hin brátt byltingarkennda afurð Frosts og Reykjavík!ur hefur enn ekki hlotið nafn, en hún mun koma út snemma á haustdögum á vegum eyfirska útgáfufélagsins Kima og er þegar farin að valda titringi í undirheimum íslenskrar tónlistar. „Ég er mjög spenntur fyrir því að vinna með Reykjavík!," segir Frost „Enda er hún klárlega besta rokksveit landsins. Og þótt víðar yrði leitað. Ég held að samstarf okkar eigi eftir að verða bæði afdrifaríkt og óþægilegt."
Mest lesið Ragga Holm og Elma giftu sig Lífið Hlaupadellan varð að fatamerki: „Ég er giftur götunni“ Tíska og hönnun „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Lífið Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Tíska og hönnun „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Lífið Vók Ofurmenni slaufað Gagnrýni Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð Lífið Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Lífið Ása Ninna kveður Bylgjuna Lífið Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Lífið Fleiri fréttir Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“ Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Sjá meira
Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“