Gunnar Páll með sex milljónir á ári fyrir stjórnarsetu 7. nóvember 2008 12:08 Gunnar Páll Pálsson.
Gunnar Páll Pálsson formaður VR þáði 6,2 milljónir króna fyrir að sitja stjórnarfundi hjá gamla Kaupþingi á síðasta ári. Það er litlu minna en þingmenn þjóðarinnar fá í þingfararkaup. Siðfræðistofnun varaði við því fyrir fjórum árum að formaðurinn sæti í stjórn hlutafélags, eins og Kaupþings - það gæti stefnt trúverðugleika hans í hættu. Gunnar Páll Pálsson liggur undir þungu ámæli fyrir að hafa setið í stjórn Kaupþings - sem fulltrúi Lífeyrissjóðs VR - og tekið þátt í því í septemberlok að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna sem höfðu keypti hluti í bankanum og tekið til þess lán. Eins og fram hefur komið er búið að lýsa því yfir að sú ákvörðun standi ekki - og starfsmenn eins og aðrir munu borga af sínum lánum. Engu að síður hefur þátttaka Gunnars Páls vakið mikla reiði. Fyrir fjórum árum óskaði Gunnar Páll eftir því að Siðfræðistofnun skoðaði ofan í kjölinn siðferðileg álitaefni um stjórnarsetu fulltrúa VR í hlutafélögum. Markmiðið var meðal annars að skoða hvort hlutverk Gunnars Páls sem verkalýðsleiðtoga, stjórnarmanni í Lífeyrissjóði verslunarmanna og stjórnarmanni í Kaupþingi stönguðust á. Niðurstaða skýrslunnar er býsna skýr. Þar segir meðal annars að trúverðugleiki formanns VR sé í hættu ef hann tengist ákvörðunum stjórnar félagsins sem hugsanlega eru óvinsælar meðal launafólks. Þessi viðvörun Siðfræðistofnunar hefur aldeilis komið á daginn. Þá hafði formaðurinn einnig fjárhagslegan hag af því að sitja í stjórn Kaupþings. Á síðasta ári þáði Gunnar Páll 6,2 milljónir fyrir að sitja stjórnarfundi. Það gera 516.000 krónur á mánuði fyrir að sitja eins og einn stjórnarfund. Í mars á þessu ári var ákveðið að laun stjórnarmanna yrðu 400 þúsund fyrir hvern bankastjórnarfund og 150.000 á mánuði fyrir hvern stjórnarnefndarfund. Ekki hefur fengist staðfest að Gunnar Páll hafi setið í stjórnarnefnd. Ef svo er, hefur hann fengið 550.000 kr. á mánuði frá mars síðastliðnum. Til samanburðar má geta þess að þingmenn þjóðarinnar fá í þingfararkaup rétt rúmlega 560.000 krónur. Gunnar Páll er nú staddur á trúnaðarmannafundi VR þar sem hann útskýrir mál sitt.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira