Ekki er allt magurt fagurt Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. nóvember 2008 08:40 Of grannar? Neytendur verða að svara því með kauphegðun sinni. MYND/News.com.au
Deyr fé, deyja frændur eru alþekkt sannindi úr Hávamálum og nú virðist svo komið að hin gullna regla auglýsingabransans um sýningarstúlkur sem líkjast mest gangandi hornsílum sé á hverfanda hveli. Sú er að minnsta kosti niðurstaða rannsóknar auglýsingasálfræðinga við Háskólann í Queensland í Ástralíu. Það voru Phillippa Diedrichs og samstarfsfólk hennar sem létu gera sjónvarpsauglýsingar fyrir nærfatnað, hársápu og samkvæmisfatnað. Af hverri auglýsingu voru hins vegar gerðar tvær útgáfur, í annarri auglýsti grannvaxin hnáta sem notaði stærð átta en í hinni útgáfunni ögn holdmeiri valkyrja af stærð tólf. Auglýsingarnar voru svo sýndar 400 ungum konum og þær beðnar að gera upp hug sinn um hvort höfðaði nú meira til kaupgleði þeirra. Kom þá í ljós að hjá meirihluta þeirra hafði það engin sérstök áhrif hvor stærðin af kvenmanni auglýsti varninginn en áberandi var þó hjá aldurshópnum 18 - 25 ára að hinar breiðvaxnari kveiktu meiri áhuga á vörunni í þeirra huga. Niðurstaða Diedrichs og félaga er því ótvírætt sú að óhætt sé fyrir auglýsendur að stækka örlítið við sig á þessum síðustu og verstu.
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira